Hjörtur ráðinn framkvæmdastjóri lækninga hjá HSU

Sigurður Hjörtur Kristjánsson lyflæknir hjá Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja hefur verið skipaður í stöðu framkvæmdastjóra lækninga við Heilbrigðisstofnun Suðurlands frá 1. janúar 2015 til 5 ára. �?essar tvær heilbrigðisstofnanir sameinast um áramótin. Sigurður Hjörtur er fæddur árið 1968. Hann lauk prófi frá læknadeild Háskóla íslands árið 1993 og hlaut almennt lækningaleyfi að loknu kandídatsári haustið 1994. Stundaði […]

Um 85% af allri fjáröflun félagsins

Árið 2014 er senn á enda og skapast hefur hefð að sprengja gamla árið í burtu með flugeldum. Flugeldasala Björgunarfélags Vestmannaeyja er hafin.Flugeldasalan verður með hefðbundnu sniði, opið verður í dag til 21:00, á gamlársdag frá 09:00-16:00 og á þrettándanum þann 9. janúar frá 13:00-19:00. Í ár eins og síðastliðin ár verður stórglæsileg brenna og […]

Ekki alvarleg meiðsli en bílar mikið skemmdir

Mjög harður árekstur tveggja bíla varð á mótum Heiðarvegar og Kirkjuvegar rétt eftir klukkan tólf í dag. �?rennt var bílunum og var það flutt á sjúkrahús til skoðunar. Bílarnir eru mikið skemmdir. Að mati lögreglunnar fór betur en á horfðist. Annarri bifreiðinni var ekið úr suðri að gagnamótunum og lenti á bifreið sem ekið var […]

Blaðið verður framvegis prentað hjá Morgunblaðinu og allt í lit

Rétt í þessu voru tímamót í sögu útgáfu Eyjafrétta þegar lokið var frágangi á síðasta tölublaði ársins 2014 sem er 40 ára afmælisár Frétta og síðar Eyjafrétta. Hingað til hafa Eyjafréttir verið prentaðar í prentsmiðju Eyjasýnar nema stærstu blöðin sem prentuð hafa verið hjá Morgunblaðinu. Blaðið hefur verið prentað í eins lita vél þannig að […]

2014 – �?trúlega erfitt ár að baki hjá mér á nánast öllum sviðum

En árið byrjaði með því að í janúar jörðuðum við systur mína, aðeins 48 ára gamla eftir mjög erfiða baráttu við krabbamein. Reyndar hafa óvenju margir eyjamenn látist að undanförnu og ekki bara fullorðið fólk, heldur líka fólk á besta aldri. Ljósið í myrkrinu er lítill afastrákur sem fæddist í haust og fékk mitt millinafn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.