Metabolic aðdáendur púla á Skansinum

Hressir hópar frá Vestmannaeyjum, Selfossi og úr Árbæ í Reykjavík, allt fólk sem dýrkar Metabolic íþróttir, gerðu sér glaðan dag og íþróttalega sinnaðan, á Skansinum fyrir nokkru. Á sinni venjubundnu Eyjaskoðun Halldórs Benedikts, rakst hann á þennan hóp, setti vídeóvélina í gang og myndaði hópinn í sínu púli. Afraksturinn er á þessu myndbandi. (meira…)
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar seinni part sunnudags.

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar seinni part sunnudags en ófært hefur verið í Landeyjahöfn síðan á fimmtudaginn. áætlun Herjólfs er eins og hér segir: Brottför frá VEY 16:00 og 18:30. Brottför frá LAN 17:15 og 19:45. Veruleg óvissa með síðustu ferð dagsins vegna sjávarstöðu. (meira…)
ÍBV heimsækir Fylki í dag

ÍBV og Fylkir mætast í 3. umferð Pepsi deildar karla í dag klukkan 17:00. ÍBV hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sumarins en báðir leikir Fylkis hafa endað með 1-1 jafntefli, gegn Breiðablik og Fjölni. (meira…)