Hlynur kom, sá og sigraði

Í dag hljóp Hlynur Andrésson í 5.000 metra á Smáþjóðaleikunum. Hann gerði sér lítið fyrir og kom fyrstur í mark á 14.45,94 mínútum. Marcos Sanza Arranz frá Andorra var annar á 14.48,94 og Pol Mellina frá Lúxemborg endaði í þriðja sæti á 15.15,52 mínútum en aðeins fjórir hlauparar tóku þátt í greininni. (meira…)
Nýr styrktar- og samstarfssamningur undirritaður

ÍBV íþróttafélag og Eimskip skrifuðu undir nýjan styrktar- og samstarfsamning til tveggja ára á heimaleik ÍBV gegn Víking í meistaraflokki karla sunnudaginn. Samningurinn snýr að farþegaflutningum Herjólfs sem rekinn er af Eimskip, fyrir leikmenn, liðstjóra og þjálfara deilda ÍBV og mun samningur þessi því létta mikið undir rekstri félagsins. Markmið Eimskips er að styðja við […]
Vikan var með rólegra móti

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og þrátt fyrir að töluvert hafi verið að gerast í skemmtanalífinu um helgina, var rólegt á þeim vígstöðum. Reyndar var eitthvað um pústra um helgina í tengslum við skemmtanahaldið, án þess þó að kærur liggi fyrr. Fimm kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum, eftir vikuna, en um […]
Karlakór Vestmannaeyja formlega stofnaður

Formlegur stofnfundur Karlakórs Vestmannaeyja fór fram sunnudaginn 31. Maí síðastliðinn á Háaloftinu. Samþykkt voru lög fyrir félagið auk þess var kosin stjórn og í önnur embætti. Nýkjörna stjórn skipa Sindri �?lafsson formaður, Hörður Orri Grettisson gjaldkeri, Jarl Sigurgeirsson ritari, Ágúst Halldórsson meðstjórnandi og Guðjón �?rn Sigtryggsson meðstjórnandi. Rúmlega 30 manns sóttu fundinn og var hugur […]
Nemanja Malovic til liðs við ÍBV á nýjan leik

Handknattleiksráð ÍBV hefur samið við Nemanja Malovic fyrir keppnistímabilið 2015 til 2016. Nemanja er 24 ára gamall Svartfellingur. Hann spilaði með ÍBV keppnistímabilið 2012 til 2013 þegar liðið sigraði 1. deildina örugglega. Nemó var markahæsti leikmaður liðsins það tímabil, skoraði 141 mark í 19 leikjum. Hann setti met þetta tímabil hjá ÍBV þegar hann skoraði […]