Vikan var með rólegra móti
Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og þrátt fyrir að töluvert hafi verið að gerast í skemmtanalífinu um helgina, var rólegt á þeim vígstöðum. Reyndar var eitthvað um pústra um helgina í tengslum við skemmtanahaldið, án þess þó að kærur liggi fyrr.
Fimm kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum, eftir vikuna, en um er að ræða brot á stöðvunarskyldu, notkun farsíma án haldfrjáls búnaðar við akstur, akstur án ökuréttinda, vanræksla á að nota öryggisbelti í akstri og farþegar fluttir á þann hátt að það veldur þeim hættu.
Lögreglan vill enn og aftur minna ökumenn á að tími nagladekkjanna er liðinn og hvetur þá sem ekki hafa gildar ástæður til að skipta yfir á sumardekkin.
�?á vill lögreglan minna ökumenn á að virða yfirborðsmerkingar á vegum, sérstaklega á Básaskersbryggju en nokkuð er um það að ökumenn virði ekki yfirborðsmerkingar þar. Rétt er að minna á að umferðarréttur fer oft á tíðum eftir yfirborðsmerkingum og því geta þeir sem eru komnir yfir á öfugan vegarhelming samkæmt yfirborðsmerkingum á Básaskersbryggju verið í órétti ef óhapp verður.

Nýjustu fréttir

Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.