Ester og Erla Rós valdar í landsliðshópinn

Ágúst �?ór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna hefur valið 20 leikmenn til að taka þátt í æfingum og tveim vináttulandsleikjum við B-lið Noregs í Noregi. ÍBV á tvo glæsilega fulltrúa í hópnum, þær Ester �?skarsdóttur og Erlu Rós Sigmarsdóttur en þetta er í fyrsta sinn sem Erla Rós er valinn í A landsliðshópinn. Hópurinn er eftirfarandi: Markmenn: […]

Poppmessan í Landakirkju á N4 í kvöld

Í þættinum Að sunnan á N4 í kvöld kl. 18.30 verður sýnt frá poppmessu sem fór fram í Landakirkju í Vestmannaeyjum síðastliðið sunnudagskvöld. Í þættinum verða sýnd brot úr lögum Pink Floyd sem flutt voru í messunni á sunnudagskvöldið. Einnig er rætt við séra Guðmund �?rn Jónsson sóknarprest í þættinum um poppmessur í Eyjum, tengingu […]

Stærra og betra Kótelettukvöld

Ákveðið hefur verið að flytja Kótelettukvöldið í stóra salinn í Höllinni og þess vegna eru nokkrir miðar til sölu. Veislan verður annað kvöld, fimmtudagskvöld klukkan 19.30 þegar borðhald hefst. �??�?etta verðum við að gera vegna mikillar eftirspurnar og alltaf leiðinlegt að skilja út undan. Munið að skrá ykkur og borga staðfestingargjaldið fyrir kvöldið, miðvikudagskvöld og […]

Sigríður Lára valin í A-landsliðshóp

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur valið 21 leikmenn til æfinga dagana 27. �?? 29. nóvember næstkomandi. Sigríður Lára Garðarsdóttir var valin frá ÍBV og er sannarlega vel að valinu komin þar sem Sísí Lára átti framúrskarandi leiktímabil síðasta sumar og var í lok tímabils valin besti leikmaður ÍBV. ÍBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með […]

Arnór og Gauti í u-14

Helgina 21. og 22. nóvember æfir u14 hópurinn undir stjórn Maksim Akbachev. �?etta er í fyrsta skipti sem þessi hópur æfir saman og hafa tæplega 70 strákar verið valdir til æfinga. Maksim valdi tvo leikmenn frá ÍBV í þennan hóp þá Arnór Viðarsson og Gauta Gunnarsson. �?rjár æfingar verða fyrir hópinn, allar í tvöföldum sal […]

Trik Agar Tetap Dahsyat dan Tidak Kesal Bermain di Kasino Online

Tips kami tak akan keluar dengan cuma menolong teman – sahabat hingga coba mulai dari game pilihan sahabat – teman. Abdi pun hendak menolong teman – sahabat untuk mempunyai kemahiran yang bagus & hebat dalam tiap saat teman – teman memainkan permainan di tiap web perjudian kasino dengan online. Namun kita tetunya tak bisa menjamin […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.