Stærra og betra Kótelettukvöld
Ákveðið hefur verið að flytja Kótelettukvöldið í stóra salinn í Höllinni og þess vegna eru nokkrir miðar til sölu. Veislan verður annað kvöld, fimmtudagskvöld klukkan 19.30 þegar borðhald hefst. �??�?etta verðum við að gera vegna mikillar eftirspurnar og alltaf leiðinlegt að skilja út undan. Munið að skrá ykkur og borga staðfestingargjaldið fyrir kvöldið, miðvikudagskvöld og þá eru þið inni,�?? segir kótelettukóngurinn Pétur Steingrímsson.
Hann átti hugmyndina að Kótelettukvöldinu á Háaloftinu á síðasta ári sem heppnaðist frábærlega og nú er lagt upp með að gera enn betur. �??Kótelettukvöldin eru að ryðja sér til rúms um allt land og eru mjög vinsæl. Ástæðan fyrir því að ég fór af stað með þetta er að mér finnst kótelettur góðar, með kartöflum, Oragrænum, rauðkáli og rabbabarasultu. Snorri Jónsson verður veislustjóri. Mun hann nú eins og þá segja eina sögu á móti hverri sem kemur úr sal,�?? segir Pétur og lofar skemmtilegu kvöldi.
Aðgangseyrir er 4500 krónur sem er sama verð og í fyrra. �??Fólk er beðið um að tilkynna komu sína á Fésbókarsíðu Kótelettuklúbbsins og borga miðana fyrir 15. nóvember með því að leggja inn á reikninginn okkar til að hægt verði að panta hráefni miðað við fjölda. �?úsund krónur af hverjum miða fara í styrktarsjóð Lions í Vestmannaeyjum,�?? sagði Pétur og hvetur hann fólk til að fjölmenna.

Nýjustu fréttir

Dýptarmæling í dag
Eyjalistinn í sókn: Heimasíða og stefnuskrá líta dagsins ljós!
Vinnandi hendur frá hafi til hátíðarborðs
Kristmundur Axel kemur fram á Þjóðhátíð
Óskar Jósúason í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
Herjólfur og Baldur báðir í áætlun á morgun
Frábær árangur FÍV – Eyjakonfekt til Tromsø
Íþróttamaður mánaðarins – Helgi Ólafsson
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.