Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í handbolta vann frábæran eins marks sigur á Víkingi Reykjavík, 29–30, þegar liðin mættust í 8. umferð Olís deildar karla í Virkinu í kvöld. Magnús Dagur Jónatansson reyndist hetja Eyjamanna þegar hann skoraði sigurmarkið á lokasekúndum leiksins eftir æsispennandi lokakafla.

Eyjamenn voru án nokkurra lykilmanna í leiknum, en Dagur Arnarsson, Sigtryggur Daði Rúnarsson og Róbert Sigurðsson voru allir fjarri góðu gamni.

ÍBV byrjaði leikinn af krafti og náði fimm marka forskoti, 4–9, þegar 15 mínútur voru liðnar. Eyjamenn höfðu yfirhöndina út fyrri hálfleikinn og leiddu með tveimur mörkum í hálfleik, 13–15.

Sigurmarkið kom í blálokin

ÍBV hélt forystunni í upphafi síðari hálfleiks og voru komnir með fjögurra marka forskot þegar tólf mínútur voru liðnar. Víkingar gáfust þó ekki upp og sóttu í sig veðrið eftir því sem leið á leikinn. Heimamenn minnkuðu muninn í eitt mark, 26–27, þegar aðeins fimm mínútur voru eftir og spennan jókst með hverri mínútunni.

Þegar 30 sekúndur voru til leiksloka var staðan jöfn, 29–29, og allt í járnum. ÍBV átti síðustu sókn leiksins og tók leikhlé þegar aðeins þrjár sekúndur voru eftir á klukkunni.

Úrslitin réðust því í lokasókninni þegar Magnús Dagur Jónatansson skoraði sigurmarkið og tryggði Eyjamönnum 29–30 útisigur.

Magnús Dagur var markahæstur í leiknum með níu mörk. Sigumundur Gísli Unnarsson varði sjö skot í marki ÍBV og Petar Jokanovic fjögur.

Eftir átta umferðir situr ÍBV í 6. sæti deildarinnar með átta stig, en Víkingur er í 10. sæti með fjögur stig.

Mörk ÍBV: Magnús Dagur Jónatansson 9 mörk, Kristófer Ísak Bárðarson 5, Andri Magnússon 3, Atli Steinn Arnarson 3, Haukur Leó Magnússon 3, Gary Emanuel Phillips 2, Sveinn José Rivera 2, Einar Bent Bjarnason 1, Heimir Halldór Sigurjónsson 1, Jason Stefánsson 1.

Nýjustu fréttir

Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.