Safnahelgin formlega sett – myndir

Safnahelgin var formlega sett í Stafkirkjunni í dag og voru það þau Sr. Guðmundur Örn Jónsson og Kristín Jóhannsdóttir sem sáu um setninguna. Á setningunni var meðal annars fjallað um Tyrkjaránið og minningum því tengt. Leikkonan Elva Ósk sagði frá nýjum einleik sínum um Tyrkjaránið sem frumfluttur verður á næsta ári og söngvarinn Hafsteinn Þórólfsson […]
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum

Karlalið ÍBV í handbolta vann frábæran eins marks sigur á Víkingi Reykjavík, 29–30, þegar liðin mættust í 8. umferð Olís deildar karla í Virkinu í kvöld. Magnús Dagur Jónatansson reyndist hetja Eyjamanna þegar hann skoraði sigurmarkið á lokasekúndum leiksins eftir æsispennandi lokakafla. Eyjamenn voru án nokkurra lykilmanna í leiknum, en Dagur Arnarsson, Sigtryggur Daði Rúnarsson […]
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi

Rithöfundurinn Steinunn Sigurðardóttir verður meðal gesta á Safnahelginni í Vestmannaeyjum. Hún kemur fram í Eldheimum á morgun, föstudaginn 30. október, klukkan 17.30, les úr nýrri skáldsögu sinni, Veislu þrjú, og spjallar við gesti um bókina, skáldskapinn og lífið. Veisla þrjú er framhald skáldsögunnar Ból, sem Steinunn hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir árið 2023. Þar kynntust lesendur […]
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf

Lenging hafnargarða í Landeyjahöfn gæti gert kleift að sigla við hærri ölduhæð, að því gefnu að nægilegt dýpi sé til staðar. Dýpkunarþörf myndi hins vegar aukast til lengri tíma og kanna þarf nánar áhrif breyttra strauma á siglingar. Þetta kemur fram í svörum Kjartans Elíassonar, verkfræðings á hafnadeild Vegagerðarinnar, við fyrirspurn Eyjafrétta. Lokaskýrsla DHI A/S […]
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins

Rannsóknir á rauðátu í Vestmannaeyjum eru komnar í sviðsljósið á landsvísu. Rauðátan ehf., undir forystu Harðar Baldvinssonar, framkvæmdastjóra Þekkingarseturs Vestmannaeyja, er meðal þriggja verkefna sem tilnefnd eru til Hvatningarverðlauna Sjávarútvegsráðstefnunnar 2026. Verkefnið, sem unnið hefur verið í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og Háskóla Íslands, gæti lagt grunn að nýrri atvinnugrein og skapað veruleg verðmæti. Möguleikarnir felast […]
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi

Fab Lab í Vestmannaeyjum, Biggi Nielsen og Vestmannaeyjabær standa fyrir sérstökum tónleikum í sundlauginni í kvöld í tilefni af Safnahelgi. Þar verða hvalahljóð úr rannsóknum Háskóla Íslands við Eyjar fléttuð saman við lifandi tónlist og myndir úr náttúru og sögu Vestmannaeyja. Biggi Nielsen leiðir tónlistarflutninginn og meðal þátttakenda er S!ll!, sem hefur vakið athygli sem […]
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann

Fleiri grunnskólar gætu tekið upp hugmyndafræði Kveikjum neistann næsta haust eftir jákvæðar niðurstöður úr þróunarstarfinu í Grunnskóla Vestmannaeyja. Í samanburðarrannsókn á lestrarfærni náðu 83% nemenda í Kveikjum neistann viðmiðum Læs2, samanborið við 53% nemenda í samanburðarhópi. Á sama tíma standa yfir viðræður við barna- og menntamálaráðuneytið um næstu skref og hvernig staðið verði að innleiðingu […]
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag

Safnahelgin í Vestmannaeyjum verður formlega sett í Stafkirkjunni í dag, fimmtudag, klukkan 18.00. Sr. Guðmundur Örn Jónsson og Kristín Jóhannsdóttir sjá um setninguna en þar verður jafnframt horft til næsta árs þegar 400 ár verða liðin frá Tyrkjaráninu 1627. Af því tilefni verður efnt til fjölbreyttrar dagskrár í Vestmannaeyjum á minningarárinu 2027. Sigurhanna Friðþórsdóttir kynnir […]
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar í fyrri ferð dagsins þar sem ófært er í Landeyjahöfn vegna veðurs og sjólags. Brottför frá Vestmannaeyjum er klukkan 07:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 10:45. Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi falla ferðir klukkan 08:15, 09:30, 12:00, 13:15, 14:30 og 15:45 því niður. Tilkynning um siglingar seinnipart dags verður gefin út fyrir klukkan […]
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld

Karlalið ÍBV í handknattleik sækir Víking heim í áttundu umferð Olísdeildar karla í kvöld, fimmtudaginn 29. október. Leikurinn fer fram í Virkinu í Reykjavík og hefst klukkan 18:30. Eyjamenn eru í sjötta sæti deildarinnar með sex stig, tveimur stigum á undan Víkingum sem sitja í tíunda sæti. ÍBV hefur unnið þrjá af fyrstu sjö leikjum […]