Rithöfundurinn Steinunn Sigurðardóttir verður meðal gesta á Safnahelginni í Vestmannaeyjum. Hún kemur fram í Eldheimum á morgun, föstudaginn 30. október, klukkan 17.30, les úr nýrri skáldsögu sinni, Veislu þrjú, og spjallar við gesti um bókina, skáldskapinn og lífið.
Veisla þrjú er framhald skáldsögunnar Ból, sem Steinunn hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir árið 2023. Þar kynntust lesendur Líneik Hjálmsdóttur, eða LínLín, konu sem hefur orðið fyrir miklum áföllum og misst margt af því sem henni var kærast.
Í Veislu þrjú er þráðurinn tekinn upp þar sem fyrri sögunni lauk. LínLín hefur komist lífs af úr miklum háska og stendur frammi fyrir þeirri spurningu hvort hægt sé að byrja upp á nýtt þegar svo margt hefur glatast.
Þrátt fyrir sorg og missi vakna nýjar tilfinningar. Vináttan reynist dýrmæt og ástin lætur á sér kræla þegar hennar er síst von. Ókunnug manneskja, sem LínLín nefnir Veislu þrjú, vekur með henni sterkar tilfinningar og opnar dyr að nýjum möguleikum.
Ást, missir og lífsþorsti eru þannig meðal viðfangsefna sögunnar, ásamt húmor og von.
Fyrsta ljóðabók Steinunnar, Sífellur, kom út árið 1969, þegar hún var nítján ára. Síðan hefur hún sent frá sér fjölda verka, meðal annars ljóð, skáldsögur og smásögur.
Meðal þekktustu skáldsagna hennar eru Tímaþjófurinn, Hjartastaður og Jójó. Hún hefur tvívegis hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin, fyrir Hjartastað árið 1995 og Ból árið 2023. Verk hennar hafa verið þýdd á fjölmörg tungumál og Háskóli Íslands hefur sæmt hana heiðursdoktorsnafnbót fyrir ritstörf.
Kynningin í Eldheimum er hluti af dagskrá Safnahelgarinnar, sem stendur frá 29. október til 1. nóvember.