
Rannsóknir á rauðátu í Vestmannaeyjum eru komnar í sviðsljósið á landsvísu. Rauðátan ehf., undir forystu Harðar Baldvinssonar, framkvæmdastjóra Þekkingarseturs Vestmannaeyja, er meðal þriggja verkefna sem tilnefnd eru til Hvatningarverðlauna Sjávarútvegsráðstefnunnar 2026.
Verkefnið, sem unnið hefur verið í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og Háskóla Íslands, gæti lagt grunn að nýrri atvinnugrein og skapað veruleg verðmæti. Möguleikarnir felast meðal annars í framleiðslu á laxafóðri, hátæknifæðubótarefnum og þróun lyfja. Hörður fagnar tilnefningunni og segir hana mikla viðurkenningu og hvatningu til frekari dáða.
„Þetta er auðvitað mikil viðurkenning og hvatning fyrir okkur. Tilnefningin er uppskera mikillar vinnu undanfarin ár við rannsóknir og þróun verkefnisins. Á næstunni mun svo skýrast betur hvernig framhaldinu verður háttað. Hver hlýtur verðlaunin á hins vegar eftir að koma í ljós,“ segir Hörður.
Verkefnið hefur kallað á umfangsmikla frumkvöðlavinnu, fjármögnun, samstarf innlendra og erlendra sérfræðinga og öflun sérhæfðs búnaðar til rannsóknarveiða. Með því hefur verið lagður grunnur að nýtingu auðlindar sem hingað til hefur lítið verið nýtt við Ísland.
Rauðátan er smávaxið svifkrabbadýr sem finnst í miklu magni í Norður-Atlantshafi og gegnir lykilhlutverki í fæðukeðju sjávar. Hún er jafnframt rík af verðmætum næringarefnum sem skapa fjölbreytta möguleika til vinnslu og verðmætasköpunar.
Úr rauðátu má meðal annars framleiða prótein- og fituríkt hráefni í laxafóður og aðrar fóðurafurðir fyrir fiskeldi. Þá er hægt að vinna úr henni verðmæt lífvirk efni, meðal annars omega-3 fitusýrur, sem nýta má í hátæknifæðubótarefni og aðrar heilsutengdar vörur.
Möguleikarnir ná einnig til lyfjaþróunar þar sem lífvirk efni úr rauðátu eru áhugaverð til rannsókna, meðal annars í tengslum við efnaskiptasjúkdóma á borð við sykursýki 2. Slík notkun er þó á rannsóknar- og þróunarstigi og ekki um að ræða staðfesta lyfjameðferð úr íslenskri rauðátu.
Þarna gætu legið mikil tækifæri fyrir íslenskan sjávarútveg. Í stað þess að nýta rauðátuna eingöngu sem hráefni í fóður væri hægt að byggja upp fjölþætta hátæknivinnslu þar sem verðmætustu efnin færu í sérhæfðar heilsu- og líftækniafurðir.

Niðurstöður rannsóknarveiða hafa meðal annars stutt við mat Hafrannsóknastofnunar á því að mögulegt sé að veiða allt að 59 þúsund tonn af rauðátu árlega við Íslandsstrendur.
Takist að byggja upp sjálfbærar veiðar og vinnslu gæti það skapað ný útflutningsverðmæti og styrkt samkeppnisstöðu íslensks fiskeldis. Þeir möguleikar eru ekki síst áhugaverðir fyrir Vestmannaeyjar þar sem sjávarútvegur er burðarás atvinnulífsins og mikil uppbygging landeldis stendur yfir.
Auk Rauðátunnar eru tvö önnur nýsköpunarfyrirtæki tilnefnd. Marimedx þróar lækningatæki úr íslenskum þörungum til sárameðferðar og endurnýjunar vefja. Nanna Lín á Akureyri vinnur að framleiðslu fiskileðurs úr laxa- og þorskroði með það að markmiði að auka verðmæti sjávarafurða og draga úr sóun.
Hvatningarverðlaunin verða afhent á opnunarmálstofu Sjávarútvegsráðstefnunnar fimmtudaginn 5. nóvember klukkan 10.00 í Silfurbergi.
Verðlaunin eru veitt í samstarfi við TM og er við valið meðal annars horft til frumleika, verðmætasköpunar og sjálfbærni. Verðlaunagripurinn nefnist Svifaldan.
Hvort Svifaldan ratar til Vestmannaeyja kemur í ljós á fimmtudaginn. Tilnefningin ein og sér er þó mikil viðurkenning fyrir það rannsóknar- og þróunarstarf sem unnið hefur verið í Eyjum. Takist að nýta rauðátuna til framleiðslu á verðmætum afurðum fyrir fiskeldi, fæðubótarefni og lyfjaiðnað gæti þar verið að fæðast ný atvinnugrein með Vestmannaeyjar í lykilhlutverki.