Bærinn semur við kaupmenn um jólagjafakort
Sigrún Alda Ómarsdóttir, formaður Félags kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri handsala samninginn um jólagjafakort starfsfólks Vestmannaeyjabæjar. Ljósmynd/vestmannaeyjar.is

Vestmannaeyjabær og Félag kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum hafa undirritað samstarfssamning um útgáfu og uppgjör jólagjafakorta sem bærinn gefur starfsfólki sínu ár hvert. Kortin gilda sem fyrr hjá fyrirtækjum innan félagsins.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Sigrún Alda Ómarsdóttir, formaður Félags kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum, undirrituðu samninginn 13. nóvember. Hann kveður á um útgáfu kortanna, hvernig þau eru notuð og hvernig endurgreiðslum til fyrirtækjanna er háttað.

Á vef Vestmannaeyjabæjar kemur fram að markmiðið með samstarfinu sé að styðja við verslun og þjónustu í heimabyggð með því að beina viðskiptunum til fyrirtækja í Eyjum.

Nýjustu fréttir

Bærinn semur við kaupmenn um jólagjafakort
Fjarvarmi í Eyjum hækkaði um 4,81% í nóvember
Herjólfur miðar við 2,5% hækkun um áramót
Já, nei, já
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Ellert Scheving segir upp hjá ÍBV
Stefna að því að hámarksbið eftir greiningu verði 12–18 mánuðir
Er samveran komin á verkefnalistann fyrir jólin?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.