Styrktarsjóður Landakirkju veitir fólki með fasta búsetu í Vestmannaeyjum aðstoð fyrir jólin. Í tilkynningu frá sjóðnum kemur fram að tekið verði við umsóknum síðustu vikuna í nóvember. Prestar Landakirkju, Guðmundur Örn Jónsson og Viðar Stefánsson, taka á móti umsækjendum á skrifstofum sínum í lok mánaðarins.
Prestarnir þakka þeim fjölmörgu fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa stutt sjóðinn í gegnum árin. Framlög þeirra gera sjóðnum kleift að aðstoða fólk sem á erfitt með að ná endum saman fyrir jólin.
Þau sem vilja styrkja sjóðinn geta lagt inn á eftirfarandi reikning.
Reikningsnúmer 0133-15-759
Kennitala 630321-0340