Átján framúrskarandi fyrirtæki í Eyjum
Eyjafyrirtækjum á lista Creditinfo fjölgar um tvö frá fyrra ári :: Miðstöðin er á listanum tíunda árið í röð
default
Vestmannaeyjar. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson.

Átján fyrirtæki í Vestmannaeyjum eru á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2026. Í fyrra voru þau sextán. Listinn var kynntur í Hörpu 28. október og alls komust tæplega 1.220 fyrirtæki á hann á landsvísu. 

Þrjú fyrirtæki bætast við Eyjalistann frá í fyrra. Það eru Köfun og öryggi ehf. (Þvottahúsið Straumur), MK 4 ehf. og Vélaverkstæðið Þór ehf. Fyrirtækin í Eyjum starfa meðal annars við útgerð, fiskvinnslu, vélsmíði, verslun og veitingaþjónustu. Miðstöðin Vestmannaeyjum er á listanum tíunda árið í röð. Fjölskyldufyrirtækið hefur starfað í Eyjum frá árinu 1940. 

Creditinfo byggir matið meðal annars á ársreikningum þriggja ára. Fyrirtækin þurftu að skila bæði rekstrarhagnaði og jákvæðri afkomu á hverju ári frá 2023 til 2025. Á sama tímabili þurftu árlegar rekstrartekjur að nema minnst 60 milljónum króna og eiginfjárhlutfall að vera að minnsta kosti 20 prósent. 

Framúrskarandi fyrirtæki í Vestmannaeyjum 2026 

  • Bergur-Huginn ehf. 
  • Bylgja VE 75 ehf. 
  • Einsi Kaldi Veisluþjónusta ehf. 
  • Eyjablikk ehf. 
  • Faxi ehf. 
  • Frár ehf. 
  • HS Vélaverk ehf. 
  • Ísfélag hf. 
  • Karl Kristmanns umboðs- og heildverslun ehf. 
  • Kvika ehf. útgerð 
  • Köfun og öryggi ehf. (Þvottahúsið Straumur) 
  • Miðstöðin Vestmannaeyjum ehf. 
  • MK 4 ehf. 
  • Narfi ehf. 
  • SBS Asia ltd ehf. 
  • Skipalyftan ehf. 
  • Vélaverkstæðið Þór ehf. 
  • VSV Seafood Iceland ehf. 

Nýjustu fréttir

Átján framúrskarandi fyrirtæki í Eyjum
Bærinn semur við kaupmenn um jólagjafakort
Fjarvarmi í Eyjum hækkaði um 4,81% í nóvember
Herjólfur miðar við 2,5% hækkun um áramót
Já, nei, já
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Ellert Scheving segir upp hjá ÍBV
Stefna að því að hámarksbið eftir greiningu verði 12–18 mánuðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.