�?ruggur sigur ÍBV ::Myndir

Nóg er að gera hjá strákunum okkar í handboltanum. Í kvöld mættu þeir nýliðum Víkings í Olís deild karla en þetta var annar leikur liðsins á aðeins þremur dögum. Leiknum lauk með öruggum sigri Eyjamanna, 34-28. Jafnt var á öllum tölum framan af leik en gestirnir úr Víkinni voru fyrri til og komust tveimur mörkum […]

Kári Kristján í æfingahóp íslenska landsliðsins

Að venju hefur Aron Kristjánsson valið 28 manna hóp fyrir EM í Póllandi. �?fingahópur Íslands verður tilkynntur á næstu dögum, en endalegur 16 manna hópur fyrir EM verður valinn á rétt fyrir mót. �?fingar A landsliðs karla hefjast 29. desember og spila strákarnir við Portúgal í Höllinni 6. og 7. janúar. Föstudaginn 8. janúar heldur […]

Nýliðar Víkings koma í heimsókn

Ekki er löng pása á milli leikja hjá strákunum þessa daganna en þeir léku í fyrradag við lið Akureyrar og spila nú aftur í dag gegn nýliðum Víkings en leikurinn hefst klukkan 18:30. Víkingur er í neðsta sæti deildarinnar með sex stig en ÍBV er í því fjórða með fimmtán stig. (meira…)

Kap VE kom­inn með sitt gamla nafn

Upp­sjáv­ar­veiðiskipið Faxi RE er kom­inn með sitt gamla nafn, Kap VE, í kjöl­far eig­enda­skipta. HB Grandi af­henti skipið í gær til nýs eig­anda, Vinnslu­stöðvar­inn­ar í Vest­manna­eyj­um. Að því búnu hélt skipið til síld­veiða fyr­ir vest­an land. Sal­an á Faxa er liður í end­ur­nýj­un upp­sjáv­ar­veiðiskipa HB Granda. Ing­unn AK var einnig seld til Vinnslu­stöðvar­inn­ar og af­hent […]

Vænlegasti kosturinn að byggja nýja sorpbrennslu

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs lá fyrir lokaskýrsla starfshóps um framtíðarlausn í sorpmálum í Vestmannaeyjum. Fram kemur í skýrslunni að vænlegasti kosturinn að mati hópsins er að byggð verði ný sorpbrennsla í Vestmannaeyjum. Samt sem áður verði haldið áfram með núverandi flokkun og skilun en með því má minnka það magn sem þarf til brennslu […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.