Elliði Vignisson: �?að þarf kjark til að breyta

Nafn Gísla J. Johnsen er samtvinnað sögu Vestmannaeyja. Hann var hér fæddur 10. mars 1881. Með verslun sinni og útgerðarrekstri átti hann stóran þátt í að bæla niður þá einokun sem hafi legið sem mara á Eyjamönnum í mannsaldir. �?að var þó bara byrjunin á ævintýranlegri uppbyggingu Gísla. Eins og allir sem þora að gára […]

Hver er framtíðarsýn Suðurlands sem ferðaþjónustusvæði?

Hvar viljum við vera eftir þrjú ár? Hvaða hlutverk viljum við að ferðaþjónustan spili á áfangastað? Frá því á vormánuðum hefur verið unnið að gerð áfangastaðaáætlunar DMP fyrir Suðurland og hefur sú vinna farið vel af stað. Skipað var í vinnuhópa í sumar og fyrstu tveimur vinnufundum svæða á Suðurlandi lokið. Valið var inn í […]

Trausti Hjaltason: Furðuleg skoðanakönnun

Undanfarið hefur fyrirtækið MMR nú verið að vinna skoðanakönnun hér í Vestmannaeyjum. Um er að ræða sama fyrirtæki og vann könnun tengda samgöngum fyrir eyjar.net og datt meðal annars í hug að spyra hversu sammála bæjarbúar væru því að gerðar yrðu umbætur á Landeyjahöfn áður en ný Vestmannaeyjaferja verður smíðuð? Rétt eins og það væri […]

Byrjar í fæðingunni sjálfri undir Eldfelli

Fríða Ísberg gaf nýverið út ljóðabókina Slitförin. Fyrir hana hlaut hún Nýræktarstyrk Miðstöð íslenskra bókmennta. Hún lauk grunnprófi í heim- speki og meistaraprófi í ritlist við Háskóla Íslands. Hún skrifar bókmenntarýni fyrir breska ritrýninn Times Literary Supplement og hefur einnig fengist við ritstjórn og útgáfu. Móðir hennar er Eyjakonan, Anna Lilja Marshall. �??�?g fæddist í […]

Draumurinn rættist með Heilsueyjunni Spa

Jackie Cordoso opnaði á dögunum Heilsueyjuna á nýjum stað og heitir fyrirtækið nú Heilsueyjan Spa. Jackie sagði að nú væru allir hennar draumar að rætast með þessari opnun. Jackie sem hefur starfrækt Heilsueyjuna núna í nokkur ár við góðar undirtektir sagði að þetta væri fyrst og fremst til að geta þjónustað kúnnana sína betur ásamt […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.