Draumurinn rættist með Heilsueyjunni Spa
Jackie Cordoso opnaði á dögunum Heilsueyjuna á nýjum stað og heitir fyrirtækið nú Heilsueyjan Spa. Jackie sagði að nú væru allir hennar draumar að rætast með þessari opnun. Jackie sem hefur starfrækt Heilsueyjuna núna í nokkur ár við góðar undirtektir sagði að þetta væri fyrst og fremst til að geta þjónustað kúnnana sína betur ásamt því að opna eiri tækifæri.
Hjá Jackie er mikið úrval af allskonar meðferðum og nuddi, heitir pottar og infrarauðir klefar, en Jackie hefur einnig ráðið til sín eira starfsfólk.
Jackie hefur í mörg ár búið til sínar eigin vörur og kynnti hún á dögunum Nature sense snyrtivöru- línuna sína sem eru 24 tegundir og
bera allar vörurnar nöfn sem rekja má til Vestmannaeyja.
Heilsueyjan Spa er nú í húsnæði Hótel Vestmannaeyja og ætla Jackie og Magnús Bragason hótelstjóri að vera í samstar . Um þessar mundir bjóða þau uppá Vetrardekur, en þá getur fólk keypt gjafabréf sem inniheldur gistingu hjá Magga, mat á Einsa Kalda, nudd hjá Jackie og aðgang að Eldheimum. Handhafar kortsins geta svo keypt ug á hálfvirði, sem sagt frábært tilboð.

Nýjustu fréttir

Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.