Aukaverk og athugasemdir frá Samgöngustofu ástæða seinkunnar

Seinkun hefur orðið á afhendingu nýs Herjólfs, en upphaflega átti ferjan að vera koma núna í Júlí, því næst átti hún að koma í september en nýr afhendinga tími er 17. október. Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdarstjóri siglingasviðs Vegagerðarinnar sagði í samtali við Eyjafréttir að það hefði komið ósk frá skipasmíðastöðinni í lok síðustu viku um að […]
Við þurfum að hafa hugrekki til þess að horfa fram á við

Sagt er að það sé mikilvægt að hafa ekki öll eggin sín í sömu körfu og á meðan störfum hefur fækkað í sjávarútvegi þá fjölgar störfum hratt í ferðaþjónustu hér í Eyjum. Eyjamenn hafa því á undanförnum árum fengið sístækkandi körfu með nýjum eggjum. Unga kynslóðin sem áður vann í fiski starfar nú í ferðaþjónustu. […]
Mættur til Eyja til þess að taka upp sjónvarpsþátt

Hann kallar sig læknirinn í eldhúsinu þegar hann sinnir ástríðu sinni að eldamennskunni en heitir Ragnar Freyr Ingvarsson og er lyf- og gigtarlæknir og er hann með vefsíðuna sem ber einmitt heitið Læknirinn í Eldhúsinu. Hann hefur skrifað matreiðslubækur og tekið upp fjölda sjónvarpsþátta þar sem hann kynnir sér mat og matarmenningu. Um þessar mundir er hann önnum […]
Lárus Garðar lék best af Eyjamönnum

Íslandsmótinu í golfi lauk í gær á okkar glæsilega Vestmannaeyjavelli. Mikið var um dýrðir og bestu kylfingar Íslands öttu kappi í fjóra daga. Guðrún Brá Björgvinsdóttir stóð uppi sem sigurvegari í kvennaflokki og Axel Bóasson í karlaflokki. Frá Golfklúbbi Vestmannaeyja léku átta kylfingar og þar af fjórir sem eru í unglinga-og afreksstarfi klúbbsins. Þeir stóðu […]