Tæp hálf milljón til Krabbavarnar

Það var margt um manninn í Höllinni er Kótilettuklúbbur Vestmannaeyja hét sitt árlega kótilettukvöld. Þar hittist hópur fólks saman og borðar kótilettur í raspi með öllu tilheyrandi og lætur gott af sér leiða um leið. Um 160 manns mættu í síðustu viku og er það Krabbavörn í Vestmannaeyjum sem nýtur ágóðans. Pétur Steingrímsson og Gunnar […]
Stelpurnar upp í annað sætið

Stelpurnar eru komnar upp í annað sæti Olísdeildar kvenna í handbolta eftir 27:22, útisigur á Stjörnunni í dag. Staðan í hálfleik var 10:7, ÍBV í vil og náði Stjarnan aldrei að jafna í seinni hálfleik. Kristrún Hlynsdóttir og Arna Sif Pálsdóttir áttu góða leiki fyrir ÍBV og skorðu fimm mörk hvor og Ester Óskarsdóttir, Greta Kavaliuskaite og […]
Það getur borgað sig að hafa flugvél við hendina

Bergur- Huginn, dótturfélag Síldarvinnslunnar í Vestmannaeyjum, gerir út togarana Vestmannaey VE og Bergey VE. Viðhaldsstjóri fyrirtækisins er Guðmundur Alfreðsson en hann er mikill áhugamaður um flug, hefur flugréttindi og á að baki um 1.600 flugtíma. Guðmundur á hlut í fisvél og eins flýgur hann vél af gerðinni Piper Warrior. Guðmundur segir að flugvélin komi oft […]
Bókasafnið og ÍBV hljóta styrk frá Krónunni

Í ágústbyrjun auglýsti Krónan eftir samfélagsverkefnum frá Vestmannaeyjum til að styrkja. En einu sinni á á ári styrkir Krónan verkefni sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna og/eða hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu samfélagsins í nærsamfélögum Krónunnar. Nú hefur verið valið úr innsendum umsóknum og tilkynnt hverjir hljóta styrk. Að þessu sinni koma tveir styrkir […]
Lúðrasveitin með tónleika á laugardaginn

Árlegir hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja verða haldnir í Hvítasunnuhöllinn Vestmannabraut laugardaginn 10.nóvember kl.16:00. Tónleikarnir eru svokallaðir Styrktarfélagatónleikar, en Lúðrasveitin á sér sveit öflugra bakhjarla sem greiða árlega hóflega upphæð, sem nú er 3 þúsund krónur, til styrktar starfinu. Við höldum þessa tónleika árlega og bjóðum styrktarfélögum okkar ásamt mökum. Aðrir gestir eru velkomnir og greiða þá […]
Andlát: Valdís Stefánsdóttir

Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og langamma Valdís Stefánsdóttir Stapavegi 6, Vestmannaeyjum lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja miðvikudaginn 31. október. Útförin fer fram frá Landakirkju Vestmannaeyjum, laugardaginn 10. nóvember klukkan 14. Svavar Garðarsson Erna Fannbergsdóttir Baldvin Þór Svavarsson, Harpa Sigmarsdóttir Edda Sigrún Svavarsdóttir, Ragnar Þór Ragnarsson barnabörn og barnabarnabarn (meira…)