Stöðugur straumur ferðamanna til Vestmannaeyja?

Áfangastaðaáætlun Suðurlands var kynnt fyrir ferðaþjónustuaðilum og fulltrúm bæjarins í byrjun desember. Laufey Guðmundsdóttir verkefnastjóri og Dagný Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri hjá markaðstofu suðurlands kynntu áætlunina. Áfangastaðaáætlun er heildstæð áætlunargerð sem tekur á öllum þeim þáttum sem koma að upplifun ferðamannsins, það er fyrirtækjum, umhverfi, íbúum og náttúru. Markmið áætlunarinnar er að stuðla að ábyrgri ferðaþjónustu; sem […]
Regla kemst á sorphirðu í næstu viku

227. fundur framkvæmda- og hafnaráðs fór fram í gær. Þar voru sorphirða og sorpeyðing meðal umræðuefna. Geir Zöega stjórnarformaður Kubbs ehf mætti á fundinn og fór yfir stöðuna í sorphirðu og sorpeyðingu. Fram kom að röskun hefur verið á sorphirðu í desember en áætlanir gera ráð fyrir að regla verði komin á sorphirðu í vikunni […]
Stelpurnar steinlágu fyrir Val

Olís-deild kvenna í handbolta fór af stað í gærkvöldi eftir langt jólafrí. Stelpurnar sóttu þá heim Valskonur í toppslag. Valskonur byrjuðu mun betur, náðu fljótt undirtökunum og komust í 13-5 þegar um tíu mínútur voru eftir að hálfleiknum. Þá hafði ÍBV ekki skorað í 15 mínútur. Eyjastúlkur klóruðu aðeins í bakkann áður en hálfleiknum lauk […]
Andlát: Kolbeinn Aron Arnarson

Elskulegur sonur minn, bróðir, mágur og barnabarn Kolbeinn Aron Arnarson frá Vestmannaeyjum varð bráðkvaddur á heimili sínu 24. desember. Jarðaförin fer fram frá Landakirku laugardaginn 12. janúar klukkan 14. Innilegar þakkir fyrir allan samhug á þessum erfiðu tímum. Ingibjörg Sigríður Kolbeinsdóttir Einar Brigir Baldursson, Íris Sif Hermannsdóttir Einar Birgir Sigurjónsson (meira…)