Kolmunni sem sækja þarf vestur af Írlandi

Eftir hádegi í dag héldu Heimaey og Sigurður út á sjó og liggur leiðin þeir þeirra að Írlandi þar sem planið er að veiða kolmunna. Eyþór Harðarson útgerðastjóri Ísfélagsins sagði í samtali við Eyjafréttir að úr því að ekkert hafi fundist af loðnu sem leyfði veiðar að þá er væri það kolmunni sem sækja þarf […]

Almennt ríkir ánægja meðal bæjarbúa með þjónustu bæjarins

Á íbúafundi sem haldinn var þann 12. febrúar sl., fór Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, yfir niðurstöður árlegrar könnunar Gallup á þjónustu bæjarins og í framhaldi fóru fram umræður milli þátttakenda á fundinum. Almennt ríkir ánægja meðal bæjarbúa með þjónustu bæjarins. Þannig voru 76% ánægðir með þjónustuna í heild, 19% hvorki né og 5% óánægðir. Að mati […]

Efling geðheilbrigðisþjónustu og auka fjárveiting til landsbyggðarinnar

Heilbrigðisráðherra tilkynnti í gær að 630 milljónum króna af fjárlögum ársins verður ráðstafað til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu, þar af fær Heilbrigðisstofnun Suðurlands 58 milljónir. Stöðugildum sálfræðinga í heilsugæslum verður fjölgað og geðheilsuteymi verða efld og byggð upp um allt land. Svandís talaði á fundinum um mikilvægi þess að landsmenn eigi allir greiðan aðgang […]

Á síðustu 12 mánuðum hefur bærinn úthlutað 30 lóðum

Það hefur ekki farið framhjá neinum að mikil uppbygging á sér stað í Vestmannaeyjum. Margir fermetrar hafa verið byggir og það má segja að allar tegundir af byggingum séu í framkvæmd og mörg spennandi verkefni í vinnslu. Það má því áætla að nóg sé um að snúast hjá skipulags- og byggingarfulltrúa bæjarins, en sem dæmi […]

Fjór­ir fasta­menn í byrj­un­arliði ÍBV meiddir

List­inn yfir meidda leik­menn hjá meistaraflokki karla í handbolta er orðinn annsi langur en í síðasta leik slasaðist hornamaður­inn Grét­ar Þór Eyþórs­son en hann meidd­ist á hné í leiknum gegn ÍR í bik­ar­keppn­inni í byrj­un vik­unn­ar. Kári Kristján Kristjáns­son er einnig meidd­ur en spilaði samt sem áður með í leiknum gegn ÍR, en þeir félagar […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.