Á síðustu 12 mánuðum hefur bærinn úthlutað 30 lóðum
Nýlega samþykkti Skipulagsráð um að hefja undirbúning við vinnslu deiliskipulags á nýju athafnasvæði við Flugvöll. Á þessu svæði sem er álíka stórt og athafnasvæðið við Flatir er gert ráð fyrir að uppbygging verði í áföngum og í samræmi við eftirspurn eftir lóðum.

Það hefur ekki farið framhjá neinum að mikil uppbygging á sér stað í Vestmannaeyjum. Margir fermetrar hafa verið byggir og það má segja að allar tegundir af byggingum séu í framkvæmd og mörg spennandi verkefni í vinnslu. Það má því áætla að nóg sé um að snúast hjá skipulags- og byggingarfulltrúa bæjarins, en sem dæmi að þá í janúar á fundi umhverfis- og skipulagsráðs lágu einar fimmtán umsóknir fyrir um lóðir eða byggingarleyfi.

Sigurður Smári Benónýsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar sagði í samtali við Eyjafréttir að síðustu ár hafi verið annasöm á byggingarsviðinu. „Í dag eru 41 íbúð á framkvæmdastigi og um 15 í byggingarleyfisferli.“

Á síðustu 12 mánuðum hefur Vestmannaeyjabær úthlutað rúmlega 30 lóðum, „þetta eru lóðir á íbúðar-, atvinnu- og sumarhúsasvæðum. Eitthvað af þessum lóðum eru þegar komnar á framkvæmdastig og fjölmargar í undirbúningi. Eins og gefur að skilja þá hefur gengið á lóðir hjá sveitafélaginu. En því tengt má benda á nýtt deiliskipulag í Áshamri sem er í auglýsingarferli þessa dagana, þar gerir skipulagstillagan ráð fyrir 54 íbúðum í rað-, par- og fjölbýlishúsum,“ sagði Sigurður Smári.

Í nýjasta tölublaði Eyjafrétta rýndum við í fasteignamarkaðinn í Vestmannaeyjum

 

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.