Aukin þjónusta í þágu bæjarbúa

Nú er vert að staldra við og fara yfir hvað nýr meirihluti í fjölskyldu og tómstundaráði hefur afrekað frá því að hafa tekið við fyrir um 8 mánuðum síðan. Fyrsta stóra málið okkar var að fara í breytingar á aldursviðmiðum frístundastyrksins. Fyrst varð breyting á að foreldrar barna frá 2-16 ára gætu nýtt sér styrkinn […]

Skipið er virkilega flott

Nú styttist í að ný ferja okkar eyjamanna komi til landsins. Andrés Sigurðsson, sem á sæti í smíðanefnd fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, sagði í viðtali í síðustu viku að skipið væri virkilega flott og stöðugt, en hann var þá staddur í Póllandi að siglingaprófa skipið. Hérna má sjá nýlegar myndir af skipinu sem skipafélagið birti. (meira…)

Veðrið nær hámarki í Vestmannaeyjum í fyrramálið

Veðurstofan varar við stormi víða um land í kvöld, nótt og á morgun. Kröpp lægð nálgast nú landið og gengur yfir í nótt en í kjölfar hennar gengur hann í suðvestan storm eða rok þar sem búast má við að hviður verði allt að 50 metrum á sekúndu. Gul viðvörun mun taka gildi á Suðurlandi […]

Góðir sigrar hjá okkar fólki um helgina

Á föstudaginn var ÍBV síðasta liðið til að tryggja sætið sitt í undanúr­slit­um CocaCola-bik­ars kvenna í hand­bolta með 28:21-sigri á KA/Þ​ór hér heima. Ester Óskars­dótt­ir og Greta Kavaliauskaite voru marka­hæst­ar hjá ÍBV með fimm mörk og Ásta Björt Júlí­us­dótt­ir skoraði fjög­ur. Það verða ÍBV, Val­ur, Stjarn­an og Fram sem berj­ast um bikar­meist­ara­titil­inn í Laug­ar­dals­höll­inni í næsta mánuði. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.