Tillaga til þingsályktunar um óháða úttekt á Landeyjahöfn

Í dag var þingsályktunar um óháða úttekt á Landeyjahöfn dreift á Alþingi. Að tillögunni standa allir þingmenn Suðurkjördæmis, Páll Magnússon sem fyrsti flutningmaður, Birgir Þórarinsson, Ásmundur Friðriksson, Ari Trausti Guðmundsson, Oddný G. Harðardóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Vilhjálmur Árnason, Smári McCarthy. Þau vilja láta hefja nú þegar óháða úttekt á Landeyjahöfn í samræmi við samgönguáætlun […]
Vegagerðin leitar allra leiða til samninga

Vegagerðin hefur um nokkra hríð freistað þess að ná samkomulagi við pólsku skipasmíðastöðina Crist S.A. um lokagreiðslu vegna smíði nýs Herjólfs og afhendingu skipsins. Fram hefur komið að á síðustu metrum smíðinnar krafðist skipasmíðastöðin skyndilega viðbótargreiðslu sem nemur um þriðjungi af smíðaverðinu. Að mati Vegagerðarinnar er engin stoð í samningi aðila varðandi þessa kröfu, segir […]
Vilja að aganefnd HSÍ endurskoði og breyti úrskurði sínum

Handknattleiksdeild ÍBV hefur sent frá sér aðra yfirlýsingu í kjölfar á úrskurði aganefndar HSÍ sem um helgina úrskurðaði fjóra leikmenn í bann, tvo úr ÍBV og tvo úr Haukum. Kári Kristján Kristjánsson hlaut þyngstu refsinguna en hann var úrskurðaður í þriggja leikja bann. Yfirlýsing ÍBV: „ÍBV krefst þess að aganefnd HSÍ endurskoði og breyti úrskurði […]
Þetta var fullkomið

The puffin run fór fram í blíðskapar veðri á laugardaginn. Um 160 mans tóku þátt í hlaupinu sem tókst afar vel til. Magnús Bragason einn af skipuleggjendum hlaupsins sagði í samtali við Eyjafréttir að þetta hefði verið fullkomið, „Þetta var fullkomið, hefði ekki getað tekist betur,“ sagði Magnús. Þórólfur Ingi Þórsson sigraði hlaupið en hann […]
Undirbúningur kostnaðaráætlunar hefði mátt vera markvissari

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 14. janúar að fela endurskoðendum reikninga bæjarins (KPMG) heildarúttekt á áætluðum kostnaði og heildarkostnaði vegna framkvæmda við Fiskiðjuna á árunum 2015 til 2018. Minnisblað KPMG var sent Vestmannaeyjabæ þann 8. apríl og var minnisblaðið til umræðu á síðasta bæjarráðsfundi. Meginniðurstöður KPMG á framkvæmdunum við Fiskiðjuna eru þær að undirbúningur […]
Vel heppnuð vorhátíð

Árleg uppskeruhátíð vetrarstarfsins í Landakirkju var haldin í gær. Eins og endranær var mikið um að vera þegar safnaðarstarfið sameinast í eina Guðsþjónustu. Kór Landakirkju söng undir stjórn Kitty Kovács, sunnudagaskólinn var á sínum stað, Kirkjustarf fatlaðra söng með messugestum og einnig komu góðir gestir úr Kór Fella- og Hólakirkju og sungu nokkur lög. Að […]