Vilja að aga­nefnd HSÍ end­ur­skoði og breyti úr­sk­urði sín­um

Hand­knatt­leiks­deild ÍBV hef­ur sent frá sér aðra yf­ir­lýs­ingu í kjöl­far á úr­sk­urði aga­nefnd­ar HSÍ sem um helg­ina úr­sk­urðaði fjóra leik­menn í bann, tvo úr ÍBV og tvo úr Hauk­um. Kári Kristján Kristjáns­son hlaut þyngstu refs­ing­una en hann var úr­sk­urðaður í þriggja leikja bann.

Yf­ir­lýs­ing ÍBV:

„ÍBV krefst þess að aga­nefnd HSÍ end­ur­skoði og breyti úr­sk­urði sín­um um þriggja leikja bann Kára Kristjáns Kristjáns­son­ar.

Dóm­ar­ar leiks­ins sögðu þetta í aga­skýrslu sinni um at­vikið„ Mat dóm­ara er að brotið sé að fram­an (grænt), beint að höfði and­stæðings af miklu afli (blátt), um sér­stak­lega hættu­lega aðgerð er að ræða (blátt), af­leiðing­ar eru að leikmaður Hauka er mikið meidd­ur eft­ir at­vikið og meta dóm­ar­ar það þannig að af­leiðing­ar séu mjög mikl­ar (rautt).

ÍBV hafði áður sent aga­nefnd HSÍ mynd­skeið og bent á að skv. þeim mynd­skeiðum sé það Heim­ir Óli leikmaður Hauka sem taki Kára Kristján niður en ekki öf­ugt.  Niðurstaða aga­nefnd­ar HSÍ var að mynd­bönd­in breyttu ekki mati dóm­ara.

Nú ligg­ur það fyr­ir að Heim­ir Óli er ekk­ert meidd­ur og af­leiðing­ar af at­vik­inu eru eng­ar fyr­ir leik­mann­inn en Heim­ir Óli lék all­an leik­inn sl. sunnu­dag.  Dóm­ar­ar segja það hins veg­ar svart á hvítu í skýrslu sinni að Heim­ir Óli sé mikið meidd­ur eft­ir at­vikið og að þeir, dóm­ar­arn­ir, meti það þannig að af­leiðing­ar séu mjög mikl­ar (rautt).  Síðan má velta því fyr­ir sér hvort að þetta mat dóm­ar­ana á ástandi Heim­is Óla hafi orðið til þess að þeir ákváðu að sleppa því að gefa hon­um rauða spjaldið fyr­ir að ráðast á Kára Kristján að fyrra bragði og taka hann tök­um.  Það er al­veg óum­deilt að það gerði Heim­ir Óli og það er líka al­veg á hreinu að slík hátt­semi er beint rautt spjald.  En ekk­ert var gert úr þessu, hvers vegna var það?

Hvað þarf ÍBV að ganga langt til að sýna það að mat dóm­ara á at­vik­inu var rangt?  Þegar að dóm­ar­ar mátu að at­vikið félli und­ir reglu 8.6 a og b þá kom fram hjá dómur­um að þeirra mat væri að Heim­ir Óli væri mikið meidd­ur og af­leiðing­ar at­viks­ins mjög mikl­ar.  Þetta reynd­ist rangt.  Ekki er vitað hvaðan upp­lýs­ing­ar um ástand Heim­is Óla eft­ir at­vikið komu.  Ef það kom frá Hauk­um og dóm­ar­ar byggðu á þeim upp­lýs­ing­um þá skýr­ir það málið.

Stjórn HSÍ get­ur ekki horft aðgerðarlaus á það þegar að sýnt er fram á það að rangt mat dóm­ara er til grund­vall­ar úr­sk­urði aga­nefnd­ar HSÍ.  Það er heim­ild til að breyta röng­um úr­sk­urði aga­nefnd­ar HSÍ í starfs­regl­um nefnd­ar­inn­ar.

ÍBV hef­ur sent stjórn HSÍ bréf og krefst þess að aga­nefnd og stjórn HSÍ setji hags­muni hand­knatt­leiksíþrótt­ar­inn­ar í for­gang.  Rétt á að vera rétt.  Afléttið bann­inu af Kára Kristjáni Kristjáns­syni, það var ekki sett á á rétt­um for­send­um og með rétt­ar upp­lýs­ing­ar.“

F.h. Hand­knatt­leiks­deild­ar ÍBV

Davíð Þór Óskars­son, formaður

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.