Hæ hó og jibbí jei

Íslenska fánanum sást víða veifað í gær í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga. Vestmannaeyjabær var að vanda með dagskrá sem hófst á Hraunbúðum og svo var líf og fjör á Stakkagerðistúni um miðjan dag. Eins og áður var gengið í lögreglufylgd frá Íþróttamiðstöðinni niður Illugagötu, inn Faxastíg og áfram Vestmannabraut að Stakkagerðistúni. Fánaberar úr Skátafélaginu Faxa […]
Erlingur Richardsson í sögubækurnar

Erlingur Richardsson ritaði nafn sitt í sögubækurnar í hollenskum handbolta í dag. Hann stýrði hollenska liðinu til 25:21-sigurs á Lettlandi á heimavelli og tryggði liðið sér sæti í lokakeppni EM með sigrinum, mbl.is greindi frá. Er í fyrsta skipti sem hollenskt karlalið verður með á lokamóti EM. Erlingur tók við hollenska liðinu í október 2017 […]
Tímamót – Bibbi í Neista 95 ára

Á sunnudaginn n.k. þann 23. júní verður Brynjúlfur Jónatansson, Bibbi í Neista 95 ára. Í tilefni þeirra tímamóta ætlar hann að bjóða til veislu í Kaffi Kró í Vestmannaeyjum á afmælisdaginn frá kl. 15:00 – 17:00. Vonast hann til að allir sem hann þekkir sjái sér fært að kíkja við. (meira…)