Ný ferja og reynslumikið starfsfólk hefur auðveldað flutningana

Herjólfur er enn í óðaönn að ferja gesti Þjóðhátíðar yfir á meginlandið en vel hefur gengið að koma fólki heim. „Vissulega er þetta ein stærsta og mesta álagshelgi sem við sinnum á hverju ári,” sagði Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdarstjóri Herjólfs í samtali við Eyjafréttir. „Nýja ferjan kom vel út en hún tekur meira af farartækjum […]

Eyjabakarí flytur framleiðsluna og stækkar verslunina

Eyjabakarí flytur framleiðslu sína á nýjan stað við Hólagötu þar sem Arnór bakari var áður til húsa með sinn bakstur. Þetta kemur fram í tilkynningu Eyjabakarís á Facebook síðu þeirra. „Um leið og við þökkum ykkur fyrir frábæra Þjóðhátíð langar okkur að segja ykkur frá þeim breytingum sem eru í vændum hjá okkur. Á næstu […]

Gamla Vestmannaey fær nafnið Smáey

Eins og kunnugt er kom ný Vestmannaey til landsins um miðjan síðasta mánuð. Nú hefur gamla Vestmannaey fengið nafnið Smáey og einkennisstafina VE 444. Útgerðarfélagið Bergur-Huginn hefur áður átt skip sem borið hefur nafnið Smáey en það var selt árið 2012 til Grenivíkur. Gert er ráð fyrir að ný Bergey, sem er systurskip nýrrar Vestmannaeyjar, […]

Íslandsbanki í Vestmannaeyjum flytur í nýtt útibú

Íslandsbanki og Steini og Olli ehf. hafa skrifað undir samning um byggingu á nýju útibúi fyrir Íslandsbanka í Vestmannaeyjum. Nýja útibúið verður staðsett á hinum svokallaða Ísfélagsreit eða nánar tiltekið að Strandvegi 26. Byggingarframkvæmdir eru hafnar og eru verklok áætluð haustið 2020. Öll hönnun og virkni nýja útibúsins tekur mið af sveigjanleika í skipulagi, nýrri […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.