Eyjabakarí flytur framleiðsluna og stækkar verslunina

Eyjabakarí flytur framleiðslu sína á nýjan stað við Hólagötu þar sem Arnór bakari var áður til húsa með sinn bakstur. Þetta kemur fram í tilkynningu Eyjabakarís á Facebook síðu þeirra. „Um leið og við þökkum ykkur fyrir frábæra Þjóðhátíð langar okkur að segja ykkur frá þeim breytingum sem eru í vændum hjá okkur.
Á næstu vikum mun öll framleiðsla og bakstur færast af Faxastígnum og upp á Hólagötu þar sem við höfum verið að vinna við að koma okkur fyrir.
Öll afkastageta og vinnsluhraði mun stóraukast þar sem fjárfest hefur verið í nýjum tækjabúnað.
Samhliða því mun búðin hjá okkur á Faxastígnum stækka allverulega og taka á sig nýja og breytta mynd með mörgum nýjungum.
Við ætlum einnig að kynna nýjan liðsmann Eyjabakarís hann Philipp Höckendorff bakara sem kom í morgun frá Þýskalandi og okkur hlakkar mikið til að bjóða ykkur upp á fullt af nýjungum á næstunni. Við tökum hress á móti ykkur eldsnemma í fyrramálið.”

Nýjustu fréttir

ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjakonur vilja styrkja stöðu sína í þriðja sæti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.