Dagleg heimsmet í pysjueftirlitinu

Heimsmetið í lundapysjuvigtun féll í dag þriðja daginn í röð. Í dag bárust 812 pysjur og heildarfjöldi kominn í 5402 lundapysur. Nokkuð ljóst er að það stefnir í met vertíð frá því mælingar hófust árið 2003. Meðalþyngd á pysjunum fer líka hækkandi sem er jákvætt. (meira…)

Börkur Þórðarson fyrstur í hálfmaraþoni – myndir

Vestmannaeyjahlaupið fór fram níunda sinn í dag í miklu votviðri. Keppendur létu það þó ekki á sig fá en alls tóku 134 þátt. Þrátt fyrir að aðstæður hefðu ekki verið eins og best verður á kosið var sett brautarmet í 5 km hlaupinu. Var þar á ferðinni Kári Steinn Karlsson sem á þá brautarmetið í öllum […]

Björgunarfélagið í Einarsstofu í dag

Í dag laugardag kl. 13.00 í Einarsstofu verður Afmælisblað Björgunarfélagsins kynnt áður en það fer í dreifingu um alla bæ. Sýndar verða rúllandi myndir á sýningartjaldi úr sögu félagsins, auk mynda frá Hálendisvakt björgunarsveitarinnar í síðusta mánuði og ýmsir munir og tæki, bæði gömul og ný verða til sýnis. Blaðið spannar 100 ára sögu BV […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.