Börkur Þórðarson fyrstur í hálfmaraþoni - myndir

Vestmannaeyjahlaupið fór fram níunda sinn í dag í miklu votviðri. Keppendur létu það þó ekki á sig fá en alls tóku 134 þátt.

Þrátt fyrir að aðstæður hefðu ekki verið eins og best verður á kosið var sett brautarmet í 5 km hlaupinu. Var þar á ferðinni Kári Steinn Karlsson sem á þá brautarmetið í öllum vegalengdum: 5, 10 og 21 km. Hljóp hann á tímanum 00:19:45. Fljótust kvenna var Sandra Dís Pálsdóttir á tímanum 00:24:30. Alls voru það 65 manns sem hlupu 5 km.

Alls hlupu 44 í 10 km hlaupinu og var það Vignir Már Lýðsson sem kom fyrstur í mark á tímanum 00:37:40. Í kvennaflokki var það Agnes Kristjánsdóttir sem bar sigur úr býtum á tímanum 00:44:19.

í hálfu maraþoni (21 km) voru 12 skráðir til leiks og kom Börkur Þórðarson fyrstur í mark á tímanum 01:31:02. Fyrst kvenna í mark var Alma María Rögnvaldsdóttir á 01:51:30.

Nýjustu fréttir

„Þetta hefur verið dans á rósum“ – hættir eftir 50 ára starf
Fær tveggja leikja bann eftir olnbogaatvik gegn FH
Bærinn svarar gagnrýni: Segja starfsánægju hafa aukist síðustu ár
Mugison með tónleika á Skansinum
Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ
Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Landa fyrir austan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.