Sísí Lára í FH

Miðjumaðurinn Sigríður Lára Garðarsdóttir er gengin í raðir FH frá ÍBV og skrifaði undir tveggja ára samning við FH rétt í þessu. Sigríður Lára hefur allan sinn feril hér á landi spilað með uppeldisfélagi sínu ÍBV en spilaði sumarið 2018 með Lilleström í Noregi. Framtíð hennar hefur verið í óvissu þó hún hafi gert fjögurra […]

Nýtt hljóð- og myndkerfi í Landakirkju

Þessa dagana standa yfir framkvæmdir í Landakirkju þar sem öllu hljóð- og myndkerfi kirkjunnar er skipt út fyrir nútíma búnað. Eins og þeir vita, sem sótt hafa stærri athafnir í kirkjunni undanfarin misseri hefur búnaðurinn ekki verið upp á sitt best og því löngu kominn tími á úrbætur í þessum efnum. Eins og fyrr verður […]

Skerðist framlagið verulega, mun það gera Vegagerðinni ókleyft að sinna nauðsynlegri dýpkun

Bæjarráð fjallaði á fundi sínum í hádeginu um drög samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins að 15 ára samgönguáætlun 2020-2034 og 5 ára aðgerðaáætlun 2020-2024, sem óskað var umsagnar um í samráðsgátt stjórnvalda. Niðurstaðan var sú að bæjarráð samþykkti eftirfarandi drög að umsögn og felur bæjarstjóra að senda hana í samráðsgátt stjórnvalda. Landeyjahöfn skiptir lykilmáli í samgöngum við […]

Kristófer Tjörvi valinn í Afrekshóp GSÍ

Á dögunum völdu Gregor Brodie, afreksstjóri Golfsambands Íslands og Ólafur Björn Loftsson, aðstoðarafreksstjóri kylfinga sem skipa munu Elítu- og Afrekshóp GSÍ veturinn 2019-2020. Í hópunum eru allir bestu kylfingar landsins, þar á meðal Kristófer Tjörvi Einarsson, en hann var valinn í Afrekshópinn. Óskum við honum til hamingju. Sjá má hópinn hér: https://golf.is/elituhopur-og-afrekshopur-gsi-2019-2020/tekið af facebook síður […]

Birkir Hlynsson aðstoðar Andra

Birkir Hlynsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari m.fl. kvenna og mun vera Andra Ólafs til halds og trausts. Birkir er að ná sér í þjálfararéttindi hjá KSÍ en hefur áður þjálfað KFS. Saman munu þeir einnig þjálfa 3. flokk karla. Birkir er hárskeri, trillusjómaður og lífskúnstner og bjóðum við hann hjartanlega velkominn til ÍBV! ibvsport.is greindi […]

Auk­inn gróður sam­hliða fjölg­un sela

Nokkuð er um að út­sel­ir kæpi á norðurodda Surts­eyj­ar, en þeir voru þó tals­vert færri í leiðangri sem far­inn var fyrr í mánuðinum held­ur en var haustið 2017. Fjöld­inn nú var í takt við aðrar sela­taln­ing­ar í eyj­unni. Til­gang­ur leiðang­urs­ins nú var einkum að fá yf­ir­lit um dreif­ingu og fjölda selkópa í látr­inu, sem er […]

Við bjóð­um í 100 ára af­mæli

Fagnaðu með okkur! Íslandsbanki í í Vestmannaeyjum fagnar 100 árum miðvikudaginn 30. október. Af því tilefni bjóðum við til veislu í útibúinu okkar á Kirkjuvegi 23 frá klukkan 9 – 16. Það væri okkur sönn ánægja að sjá sem flesta fagna þessum tímamótum með okkur og þiggja veitingar. Við verðum í hátíðarskapi og tökum vel á […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.