Starfsári sunnudagaskóla og barna- og æskulýðsstarfs lokið

Sökum fjöldatakmarkanna höfum við í Landakirkju ákveðið að starfsári sunnudagaskóla og barna- og æskulýðsstarfs sé lokið nú fyrir veturinn 2020-2021. Við stefnum þó á að halda okkar árlegu vorhátíð á komandi vordögum ef létt verður nægilega á fjöldatakmörkunum. Starfið mun svo hefjast aftur að fullu með haustinu að loknu sumarfríi (meira…)
Knattspyrnufélagið Týr 100 ára

Þann 1. maí næstkomandi eru rétt eitt hundrað ár liðin frá stofnun Knattspyrnufélagsins Týs. Við gömlu nágrannarnir á Illugagötunni ákváðum að gera eitthvað skemmtilegt til að minnast þessara merku tímamóta. Halli Steini ræddi við Halldór frænda í Henson og fékk hann til að rippa upp nokkrum gamaldags íþróttabúningum fyrir okkur af þessu tilefni. Ég var […]
Niðurstöðutölur úr ársreikningi Vestmannaeyjabæjar

Forseti bæjarstjórnar Elís Jónsson las upp niðurstöðutölur úr ársreikningi Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans fyrir árið 2020 á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku, helstu niðurstöður má sjá hér að neðan: a) Ársreikningur sjóða í A-hluta 2020: Afkoma fyrir fjármagnsliði (neikvæð) kr. -156.231.000 Rekstrarafkoma ársins (neikvæð) kr. -60.211.000 Niðurstaða efnahagsreiknings kr. 12.405.835.000 Eigið fé kr. 6.969.004.000 Samstæða […]