Bergur VE seldur til Grindavíkur

Bergur ehf. í Vestmannaeyjum hefur samþykkt sölu á Berg VE 44 til Vísis í Grindavík. Skipið verður afhent nýjum eigendum í ágúst á þessu ári. Þetta kemur fram í færslu á facebook-síðu Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað. Bergur er með tæplega 1600 þorskígildi, en skipið er selt án aflaheimilda. Bergur ehf. mun í kjölfarið kaupa Bergey VE […]
Breiðablik – ÍBV í Kópavogi

Leikið er í Pepsí Max deild kvenna í kvöld. ÍBV stelpurnar heimsækja Breiðablik klukkan 18.00 á Kópavogsvelli. ÍBV er í fimmta sæti deildarinnar með 13 stig. Breiðablik er í harðri toppbaráttu og situr í öðru sæti deildarinnar eftir 10 umferðir. (meira…)
Auknar heimildir til strandveiða

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um auknar heimildir til strandveiða. Alls verður 1.171 tonnum af þorski bætt við en um er að ræða óráðstafað magn sem kom til á skiptimarkaði í skiptum fyrir makríl og fleiri tegundir. Með þessari aukningu verður því heildarmagn í þorski á strandveiðum alls 11.171 tonn og […]
Handboltastelpurnar fara til Grikklands

Rétt í þessu var að klárast dráttur í Evrópukeppnir EHF. Alls voru 50 lið í pottinum og þar á meðal Kvennalið ÍBV í EHF European Cup. Stelpurnar drógust gegn AC Paoc frá Grikklandi. Ljóst er að um verðugan andstæðing er að ræða en liðið er tvöfaldur meistari í sínu heimalandi síðustu þrjú ár. Liðið komst […]
Síðasti sjens að ná í tjaldlóð

Nú fer hver að verða síðastur að sækja um lóð fyrir hvítt hústjald í Herjólfsdal því lokað verður fyrir umsóknir klukkan 10:00 í dag. Sækja þarf um “lóð” á www.dalurinn.is , skrá sig þar inn og fylla út upplýsingar sem beðið er um. Mikilvægt er að allir reitir sé fylltir út svo að umsókn sé gild. Nauðsynlegt er að […]