Hraðahindranir á Heimagötu

Ökumenn sem farið hafa um Heimagötu í dag og í gær hafa tekið eftir því að búið er að koma fyrir hraðatakmarkandi þrengingum í götunni, annars vegar hjá KFUM & K húsinu og hins vegar hjá Ásgarði. Ábendingar hafa komið frá íbúum í götunni um hraðakstur og ætla má að sé verið að koma til […]
Skjót viðbrögð skipta máli

Fimmtudagsmorguninn 12. ágúst sl. hélt ísfisktogarinn Bergey VE til veiða frá Vestmannaeyjum frá þessu er greint á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Áður en haldið var í veiðiferðina fór öll áhöfnin í Covid-hraðpróf og reyndust allir neikvæðir. Snemma á mánudagsmorguninn fór einn úr áhöfninni að hósta og finna fyrir lasleika. Var hann þegar tekinn í hraðpróf um borð […]
Að gefnu tilefni

Vegna ummæla oddvita sjálfstæðisflokksins í morgun finnst mér brýnt að eftirfarandi komi á framfæri: 1) Ég hef aldrei, og mun aldrei, tjá mig opinberlega um málefni einstaka starfsmanna hjá Vestmannaeyjabæ. 2) Hjá Vestmannaeyjabæ er alltaf unnið eftir ákveðnum verkferlum þegar upp koma mál er varða mögulegt einelti eða áreiti. Bæjarfulltrúar eða pólitískir nefndarmenn í ráðum […]
Vera skólum hvati til frekari skólaþróunar

Til stendur að vinna ytra mat á Grunnskóla Vestmannaeyja á haustönn 2021 málið var til umræðu á fundi fræðsluráðs í vikunni. Það er menntamálstofnun sér um framkvæmd ytra mats á grunnskólum fyrir hönd menntamálaráðuneytis og sveitarfélaga. Markmið með ytra matinu eru meðal annars að vera skólum hvati til frekari skólaþróunar, styðja stjórnendur og kennara í […]
Bergur verður grænn

Í gær birti Tryggvi Sigurðsson myndir af togaranum Bergi VE-44 í slippnum í Reykjavík. Myndirnar birti Tryggvi á síðu sinni “Vélbátar Vestmannaeyinga í yfir 100 ár” á Facebook. Myndirnar sýna togarann Berg í miðri málun þar sem skrokkur hans fær nú græna kápu en báturinn hefur áður borið rauðan lit. Ástæða þess er að sjávarútvegsfyrirtækið […]
Yfirlýsingar bæjarstjóra óásættanlegar

Umfjöllun landsmiðla um meint einelti gagnvart starfsmanni Vestmannaeyjabæjar hefur eðli málsins samkvæmt vakið mikla athygli og umræðu og valdið undirritaðri áhyggjum. Engar upplýsingar um málið hafa verið veittar undirritaðri þrátt fyrir beiðni um slíkt við formann bæjarráðs og hefur upplýsingagjöf því takmarkast við umfjöllun fjölmiðla þar sem m.a. er haft eftir bæjarstjóra að þær alvarlegu […]
Andlát: Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangaamma Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir frá Skálholti í Vestmannaeyjum Lést á Hraunbúðum 15. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir hlýja og góða umönnun. Þóra H Egilsdóttir – Arngrímur Magnússon Kristján Egilsson – Pála B Pálsdóttir Guðjón Egilsson Sigurbjörn […]