Minningarathöfn um Pelagus-slysið

Á sunnudaginn, 12. september, verður efnt til minningarathafnar í Vestmannaeyjum um Pelagus-slysið, sbr. meðfylgjandi boðskort. Aðfaranótt 21. janúar 1982 strandaði togarinn Pelagus við Prestabót í mjög slæmu veðri. Við afar erfiðar aðstæður tókst að bjarga sex skipverjum í land en tveir fórust. Undir lok björgunaraðgerða gerðist síðan sá hörmulegi atburður að tveir björgunarmenn fórust, þeir […]
Brennan tendruð annaðkvöld

Kveikt verður í bennunni á Fjósakletti annað kvöld en brennan hefur staðið tilbúin í Herjólfsdal tæpan einn og hálfan mánuð. Þetta staðfesti Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags í samtali við Eyjafréttir. “Já það verður brenna annað kvöld kl 21:00. Fólk má fara inní dal og njóta hennar úr brekkunni eða þar sem það vill vera, […]
Hvenær ætlum við sjálf að veðja á samfélagið okkar?

Núna svona rétt fyrir kosningar hefur dregið úr samgöngum til Eyja. Ekkert flug og miðdegisferð Herjólfs tekin af. Vetraráætlun komin á þegar sumarið er varla búið a.m.k. að mati þeirra sem halda hér úti ferðaþjónustu og verslun og þjónustu. Algjört klúður að mínu mati svona rétt fyrir kosningar með samgönguráðherrann í kjördæminu. Mokað undir lélega […]
Hlutfall fasteignaskatts lækkar

Forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022 voru til umræðu á fundi bæjarráðs í gær. Í forsendum fjárhagsáætlunar er lagt upp með að útsvarsprósenta verði óbreytt á milli ára eða 14,46% og að framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga verði í samræmi við áætlun sjóðsins, sem ætti að liggja fyrir áður en áætlunargerðinni lýkur. Í forsendum er hlutfall af […]
100 ára afmæli Útvegsbændafélags Vestmannaeyja

Útvegsbændafélag Vestmannaeyja fagnar um þessar mundir 100 ára afmæli félagsins. Af því tilefni bjóða félagsmenn Útvegsbændafélagsins í afmælishóf sem haldið verður í Sagnheimum, Byggðasafni Vestmannaeyja, í dag föstudaginn 10. september kl. 16:00. Áhugasamir eru hvattir til að mæta og eru eldri félagar í Útvegsbændafélaginu sérstaklega boðnir velkomnir. (meira…)