Helgi Sig kveður ÍBV

Eftir tvö ár sem þjálfari meistaraflokks karla hjá ÍBV hefur Helgi Sigurðsson óskað eftir að hætta með liðið eftir yfirstandandi keppnistímabil. Fram kemur í tilkynningu frá ÍBV að frá því ÍBV og Helgi hófu samstarf hafa aðstæður hans breyst og óskaði hann eftir að fá að hætta til að geta varið meiri tíma með fjölskyldunni. […]
Strákunum spáð þriðja sæti en stelpunum því fimmta

Kynningarfundur Olís- og Grill 66 deildanna í handbolta fór fram í dag, fyrir fundinn kusu þjálfarar, leikmenn og formenn deildanna um árangur liðanna í deildunum í vetur. Kvenna liði ÍBV er spáð 5. sætinu í í Olís deild kvenna en Fram er spáð sigri, nýliðum Aftureldingar er spáð falli. Karlalið ÍBV hafnaði í 3. sæti […]
Eyjan græna

Samgöngur til og frá Vestmannaeyjum eru og hafa verið mitt hjartans mál. Ég hef sem þingmaður þessa kjördæmis talað lengi fyrir því í ræðu og riti að samgöngur til og frá Vestmannaeyjum verði að vera skilvirkar. Sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fékk ég tækifæri til að efna þau loforð sem ég gaf og hef unnið sleitulaust […]
Art er smart

Samningur hefur verið undirritaður á milli Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og félagsmálaráðuneytisins sem tryggir rekstur ART-verkefnisins næstu þrjú árin. Undirritunin markar þáttaskil í rekstrinum og er viðurkenning á að ART úrræðið sé komið til að vera. Því má segja að þetta sé stór dagur og ákveðinn sigur fyrir Sunnlendinga alla en samningurinn tryggir áframhaldandi þjónustu […]
Plöntuskiptimarkaður á Bókasafni Vestmannaeyja

Átt þú á nokkrar auka plöntur heima? Mættu endilega með þær í plöntuskipti á í dag miðvikudaginn 15. september. Bókasafn Vestmannaeyja ætlar að halda plöntuskiptimarkað. Öllum er velkomið að skiptast á plöntum. Planta á móti plöntu og svo framvegis. Plöntuskiptimarkaður verður milli kl. 15:30-17:00 Það verður komið fyrir borðum í Einarsstofu. Þau sem hafa ekkert […]