Stelpurnar spila báða leikina heima

Báðar viðureignir ÍBV og gríska liðsins AEP Panorama í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik fara fram í Vestmannaeyjum. Að sögn Vilmars Þórs Bjarnasonar, framkvæmdastjóra handknattleiksdeildar ÍBV í samtali við vefinn handbolti.is, hafa félögin komið sér saman um að leikirnir verði föstudaginn 19. nóvember kl. 18.30 og laugardaginn 20., kl. 13:00. Rætt er við Sunnu […]

Ísfélagið eykur styrk sinn við ÍBV

Í síðustu viku skrifuðu Aðalstjórn ÍBV og Ísfélag Vestmannaeyja hf. undir nýjan þriggja ára samstarfssamning. Í tilefni af 120 ára afmæli Ísfélagsins var styrkurinn aukinn og mun Ísfélagið vera sýnilegra í starfi ÍBV á næstu þremur árum í knattspyrnudeild, handknattleiksdeild og unglingaráði félagsins. Samstarfssamningurinn er mikilvægur fyrir ÍBV sem hefur orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni […]

Leita allra leiða að tryggja vistun eftir 12 mánaða aldur

Leikskóla og daggæslumál voru til umræðu á fundi fræðsluráðs sem fram fór í gær en um var að ræða framhald af 3. máli 349. fundar. Fræðslufulltrúi fór yfir umsóknir um leikskólavistun en þeim hefur fjölgað töluvert frá síðasta fundi fræðsluráðs. Í niðurstöðu sinni ítrekar fræðsluráð mikilvægi þess að leitað verði allra leiða til að tryggja […]

Fermingarbörn safna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar

Í dag miðvikudaginn 3 .nóvember milli kl. 17.00 – 18.30, munu fermingarbörn í Landakirkju ganga í hús og safna fyrir vatnsverkefni hjálparstarfs kirkjunnar. Hér er um hina árlegu söfnun fermingarbarna að ræða.  Fyrir söfnunina hafa fermingarbörnin fengið fræðslu um verkefnið, sem snýst um að safna fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda.  Það er ágætt að hafa […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.