Skemmdarverk unnin á botni sundlaugarinnar

Sundlaug Vestmannaeyja verður lokuð frá fimmtudeginum 18. til sunnudagsins 21. nóvember. Þá standa yfir viðgerðir vegna skemmda sem unnar voru á botni laugarinnar s.l. sunnudag. Tæma þarf laugina að sögn Grétars Þórs Eyþórssonar forstöðumanns íþróttamiðstöðvarinnar og lagfæra lista á botni laugarinnar. Grétar sagði í samtali við Eyjafréttir að ungir drengir hafi gert það að leik […]
ÍBV mætir Fram í 32 liða úrslitum

Rétt í þessu var dregið í 32 liða úrslit Coca Cola bikars karla á skrifstofu HSÍ. Liðin sem skráð voru til leiks í Coca Cola bikar karla eru:Afturelding, FH, Fjölnir, Fram, Grótta, Haukar, HK, Hörður, ÍBV, ÍBV 2, ÍR, KA, Kórdengir, Selfoss, Stjarnan, Valur, Víkingur, Vængir Júpíters og Þór. Liðin sem sátu hjá í 32 […]
Gunnar Heiðar framlengir

Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur framlengt samning sinn sem þjálfari KFS. Gunnar hefur stýrt KFS undanfarin tvö ár. Fyrra árið fóru þeir upp úr 4. deildinni og í sumar endaði liðið í 6. sæti 3. deildar þrátt fyrir brösuga byrjun. Samstarf 2. flokks og KFS hefur gengið mjög vel og hefur það orðið til þess að ungir leikmenn […]