Gunnar Heiðar framlengir
Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Hjalti Kristjánsson

Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur framlengt samning sinn sem þjálfari KFS. Gunnar hefur stýrt KFS undanfarin tvö ár. Fyrra árið fóru þeir upp úr 4. deildinni og í sumar endaði liðið í 6. sæti 3. deildar þrátt fyrir brösuga byrjun. Samstarf 2. flokks og KFS hefur gengið mjög vel og hefur það orðið til þess að ungir leikmenn ÍBV eru að fá betri reynslu en áður. Það er því keppikefli allra að halda KFS áfram í 3. deild, það er mikilvægt fyrir uppbyggingastarf félagsins.

Fram kemur í frétt á vef ÍBV um málið að jákvætt sé að halda Gunnari Heiðari innan raða félagsins áfram, hann mun áfram vera mikilvægur hlekkur í því að styrkja samstarfið milli meistaraflokka ÍBV og KFS við starf 2.flokks og 3.flokks í félaginu.

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.