Einangrun stytt úr sjö dögum í fimm

Einangrun vegna Covid-sýkingar verður stytt úr sjö dögum í fimm með reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi mánudaginn 7. febrúar. Sem fyrr verður þó heimilt að framlengja einangrun ef þörf krefur samkvæmt læknisfræðilegu mati. Frá sama tíma er afnumin skylda þeirra til að sæta sóttkví eða viðhafa smitgát sem eru með afstaðna sýkingu, staðfesta með PCR-prófi […]
Myndband frá byggingu Vilpunnar

Ljósmyndasafn Vestmannaeyja ætlar í ár að birta bæði myndbúta og ljósmyndir á föstudögum. Þessi myndbútur er frá byggingu Vilpunnar. Spurt er kannast einhver við mennina? Vikumyndin er samstarfsverkefni ljósmyndasafnsins og Vestmannaeyjabæjar (meira…)
Fullfermi tvisvar í viku

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í fyrradag. Í kjölfar þess verður tveggja daga stopp á meðan skipt verður um togvíra. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Jón Valgeirsson skipstjóra. „Aflinn sem við lönduðum var að mestu þorskur sem við fengum á Pétursey og Vík. Það hefur verið góður afli á þessum slóðum að undanförnu og […]
Hlaðvarpið – Einar Kristinn Kárason

Í fertugasta og áttunda þætti er rætt við Einar Kristinn Kárason og forvitnast um líf hans og störf. Einar Kristinn ræðir við okkur um íþróttir, fótbolti, fjölskylduna, vinnuna, tísku, saumaskap og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra stutt ágrip um sögu vatnsins í Vestmannaeyjum. Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram […]
Jón Jökull og Róbert Aron framlengja við ÍBV

Knattspyrnumennirnir Jón Jökull Hjaltason og Róbert Aron Eysteinsson hafa ákveðið að framlengja samninga sína við félagið til næstu tveggja ára. Róbert Aron er uppalinn í Vestmannaeyjum þar sem hann hefur spilað með öllum flokkum félagsins en Jón Jökull er að hluta uppalinn hjá félaginu. Róbert, sem er 22 ára miðjumaður, hefur spilað 61 leik fyrir […]