Fullfermi tvisvar í viku

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í fyrradag. Í kjölfar þess verður tveggja daga stopp á meðan skipt verður um togvíra. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Jón Valgeirsson skipstjóra. „Aflinn sem við lönduðum var að mestu þorskur sem við fengum á Pétursey og Vík. Það hefur verið góður afli á þessum slóðum að undanförnu og við höfum landað fullfermi tvisvar í viku. Mér líst býsna vel á framhaldið. Næst munum við halda austur og reyna við ýsu og ufsa. Við sjáum til hvernig það mun ganga,“ segir Jón.

Nýjustu fréttir

Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar
Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
ÍBV sækir Þrótt heim í dag
Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.