Vestmannaeyjabæ heiðursgestur Menningarnætur 2023

Vestmannaeyjabær verður heiðursgestur Menningarnætur í Reykjavík 2023 í tilefni af 50 ára goslokaafmæli og langvarandi vinatengslum bæjarfélaganna. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri bauð Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar, formlega á Menningarnótt 2023 í gær. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir það mikinn heiður og þakkaði fyrir boðið. „ Gosið á Heimaey hafði mikil áhrif á öllu landinu. Mikilvægt er […]
Fólksflutningar og skömmtun á vatni bili vatnsleiðslan – Atvinnulíf stöðvast

Á fundi Almannavarnanefndar Vestmannaeyja í gær er lýst yfir áhyggjum af þeirri staðreynd að einungis ein nothæf neysluvatnslögn er milli lands og Vestmannaeyja. „Núverandi lögn, neðansjávarleiðsla 3, var tekin í notkun árið 2008. Neðansjávarleiðslur 1 og 2 hafa báðar verið dæmdar ónýtar, sú fyrri árið 2008 og sú síðari árið 2014. Frá 2014 hefur neðansjávarleiðsla […]
Saga og súpa í Sagnheimum á morgun, laugardag

Laugardaginn 8. október kl. 12-13 bjóðum við upp á Sögu og súpu. Að þessu sinni kemur í heimsókn Halldór Svavarsson, seglasaumari og áhugamaður um sögu, sem fæddist í Byggðarholti, Kirkjuvegi 9b, í Vestmannaeyjum árið 1942. Strand Jamestown er fjórða bók höfundar og fjallar um endalok eins stærsta seglskips í heimi á 19. öld en það strandaði […]
Álfsnes komið af stað eftir bilun

Dýpkun er hafin á ný í Landeyjahöfn eftir að bilun kom upp í lyftubúnaði dýpkunarskipsins Álfsness. Búast má við einhverri röskun á siglingum gamla Herjólfs næstu daga og líklegt er að ferjan muni sigla eftir sjávarföllum. Við dýpkunina í Landeyjahöfn á miðvikudagskvöld bilaði spilið í Álfsnesi, sem sér um að lyfta dælurörinu. Skipinu var siglt […]
Vinna hafin við kortlagningu stjórnunar- og eignatengsla í sjávarútvegi

Í samræmi við stjórnarsáttmála og áherslur Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra vinnur matvælaráðuneytið nú að heildarstefnumótun í sjávarútvegi undir yfirskriftinni Auðlindin okkar. Liður í því starfi er kortlagning stjórnunar- og eignatengsla í sjávarútvegi. Markmið þeirrar vinnu er að stuðla að gagnsæi í eignarhaldi sjávarútvegsfyrirtækja ásamt upplýstri stefnumótun stjórnvalda um regluumgjörð sjávarútvegs og breytingar á henni. Einnig að farið sé […]