Vinna hafin við kortlagningu stjórnunar- og eignatengsla í sjávarútvegi

Í samræmi við stjórnarsáttmála og áherslur Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra vinnur matvælaráðuneytið nú að heildarstefnumótun í sjávarútvegi undir yfirskriftinni Auðlindin okkar. Liður í því starfi er kortlagning stjórnunar- og eignatengsla í sjávarútvegi.

Markmið þeirrar vinnu er að stuðla að gagnsæi í eignarhaldi sjávarútvegsfyrirtækja ásamt upplýstri stefnumótun stjórnvalda um regluumgjörð sjávarútvegs og breytingar á henni.
Einnig að farið sé að lögum og reglum á þessu sviði og eftirlitsstofnanir geti sinnt hlutverki sínu.

Eftirlitsstofnanir sem hafa það hlutverk að fylgjast með stjórnunar- og eignatengslum í íslensku atvinnulífi hafa að eigin frumkvæði áformað að efla samstarf með það að markmiði að skapa betri yfirsýn yfir stjórnunar- og eignatengsl, nýta betur þekkingu á því sviði og styrkja greiningu og nauðsynleg úrræði.

Matvælaráðuneytið hefur gert samning við Samkeppniseftirlitið um að tryggja fjárhagslegt svigrúm til að stofnunin geti ráðist í athugun á stjórnunar- og eignatengslum í sjávarútvegi. Samhliða er stefnt að auknu samstarfi stofnana á þessu sviði, þ.e. Samkeppniseftirlitsins, Fiskistofu, Skattsins og Seðlabanka Íslands.

Athuguninni er fyrst og fremst ætlað að auka gagnsæi og bæta stjórnsýslu á sviði eftirlits með stjórnunar- og eignatengslum í sjávarútvegi. Í athuguninni felst upplýsingasöfnun og kortlagning eignatengsla sjávarútvegsfyrirtækja sem hafa fengið úthlutað ákveðnu umfangi aflaheimilda og áhrifavaldi eigenda sjávarútvegsfyrirtækja í gegnum beitingu atkvæðisréttar og stjórnarsetu í fyrirtækjum.

Framangreind kortlagning verður sett fram í sérstakri skýrslu. Skýrslan verður afhent matvælaráðuneytinu eigi síðar en 31. desember 2023 og verður því aðgengileg ráðuneytinu í stefnumótunarvinnu um sjávarútveginn.

Skýrslan mun ekki fjalla um ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins eða annarra eftirlitsstofnana um frekari athuganir eða íhlutun á grundvelli starfsheimilda eða starfsskyldna samkvæmt hlutaðeigandi lögum. Hún mun hins vegar nýtast Samkeppniseftirlitinu, Fiskistofu, Skattinum og Seðlabanka Íslands við þekkingaruppbyggingu og við beitingu lagafyrirmæla á viðkomandi sviði. Við vinnslu skýrslunnar er stefnt að því að mótuð verði upplýsingatækniumgjörð sem nýtist við frekari kortlagningu og eftirlit með stjórnunar- og eignatengslum í íslensku atvinnulífi almennt.

Nánari upplýsingar um verkefnið Auðlindin okkar má finna á vefsíðu verkefnisins ásamt upplýsingum um skipan í starfshópa og gagnasafni með lögum, dómum, frumvörpum, álitum og úrskurðum sem tengjast sjávarútvegi.

Nýjustu fréttir

Sjónarhorn flakkarans á nýja hrauninu
Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar
Íslenska neiið fer um heiminn – fiskurinn í aðalhlutverki
Vestmannaeyjahlaupið fer fram á laugardaginn
Breyttur útivistartími barna frá og með deginum í dag
Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.