Valkyrjurnar hans Sigga mega vel við una

Um leið og Valskonum er óskað til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn í handbolta sem þær unnu verðskuldað eftir sigur í þriðja leik úrslitanna í Vestmannaeyjum í dag verður að taka ofan hattinn fyrir valkyrjunum hans Sigga Braga. Þær hafa skemmt okkur og fyllt stolti með frábærum árangri á tímabilinu. Höfðu betur í bikarnum gegn Val og […]

Meistari endataflsins sýnir hvers hann er megnugur

Enn og aftur sannar Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV karla í handboltanum að hann er meistari endataflsins. Hann sýndi það oftar en einu sinni í undanúrslitunum gegn FH og nú bætist enn ein rósin í hnappagatið hjá honum eftir 33:27 sigur á Haukum í fyrsta leik úrslitanna í Vestmannaeyjum í dag. Staðan var jöfn í hálfleik […]

Að duga eða drepast hjá Eyjakonum

Það er allt undir hjá Eyjakonum sem mæta Val í þriðja leiknum  í úrslitum Íslandsmótsins  í Eyjum í dag. Valur hefur unnið tvo leiki og á því möguleika á Íslandsmeistaratitlinum í dag nái þær að sigra. Bæði lið eru án lykilmanna, Birna Berg hefur ekkert verið með ÍBV í einvíginu og Thea Imani hefur verið […]

Yndislegt að vera kominn í úrslit

„Ein­vígið leggst ótrú­lega vel í mig. Það er al­veg ynd­is­legt að vera kom­inn aft­ur í úr­slit og líka fyr­ir okk­ur að sýna að við erum stöðugt í bar­áttu um titla. Við erum alltaf þarna uppi og búum okk­ur und­ir það fyr­ir hvert tíma­bil að vera klár­ir á þess­um tíma árs að spila hand­bolta,“ segir Kári […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.