Að duga eða drepast hjá Eyjakonum

Það er allt undir hjá Eyjakonum sem mæta Val í þriðja leiknum  í úrslitum Íslandsmótsins  í Eyjum í dag. Valur hefur unnið tvo leiki og á því möguleika á Íslandsmeistaratitlinum í dag nái þær að sigra.

Bæði lið eru án lykilmanna, Birna Berg hefur ekkert verið með ÍBV í einvíginu og Thea Imani hefur verið fjarra góðu gamni hjá Val.

Valskonur urðu síðast Íslandsmeistarar árið 2019 en ÍBV er deildar- og bikarmeistari og varð síðast Íslandsmeistari 2004. Takist ÍBV að sigra í dag, verður fjórði leikurinn á Hlíðarenda á þriðjudaginn kemur. Vinni ÍBV næstu tvo leiki, mætast þau í oddaleik í Eyjum eftir viku.

Sunna í leik á móti Haukum. Hún er ein lykilkvenna í liði ÍBV.

Mynd Sigfús Gunnar.

Nýjustu fréttir

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.