Eyjamaðurinn: Elís Þór

Elís Þór Aðalsteinsson handboltamaður, íþróttamaður æskunnar eldri, er Eyjamaðurinn að þessu sinni. Aldur? 18 ára. Fjölskylduhagir? Mamma (Katrín) og pabbi (Aðalsteinn), tvær systur Eva og Telma og síðan á ég líka hund. Hvaða þýðingu hefur það fyrir þér að vera valin/valinn íþróttamaður æskunnar? Það er heiður að fá að vera valinn íþróttamaður æskunnar og er ég þakklátur fyrir að hafa unnið það og hvetur mann til að gera en betur. Hvernig er venjulegur dagur í þínu lífi? Hann er oftast mjög svipaður: skóli-lyftingar-æfing og síðan reynir maður að slaka aðeins á. Aðal áhugamál fyrir utan íþróttir? Að Ferðast getur verið veisla. Síðasta hámhorfið? Absentia á Netflix (mæli með). Hver er þín helsta fyrirmynd í íþróttum? Ómar Ingi Magnússon er mín helsta fyrirmynd. Mottó? Þeir skora sem þora. Hvert stefnir þú handboltanum? Ég stefni eins langt og hægt er. Hvað óttast þú mest? Meiðsli. Hvað hefur staðið upp úr á tímabilinu hingað til? Leikurinn á móti Aftureldingu í deild hefur staðið upp úr hingað til. Hvaða þrjá einstaklinga tækir þú með á eyðieyju og af hverju? Ætli maður tæki ekki Jón Gunnar fyrir fyrir góðan vinskap, Ólaf Má, alltaf stutt í grínið á þeim bæ og Birkir til að koma smá viti í þennan hóp. Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Nota hægri í allar íþróttir nema handbolta. Hefur þú stundað aðrar íþróttir en handbolta? Já fótbolta, golf og sund. Hvenær byrjaðir þú að æfa handbolta? Held ég hafi verið 5 ára. Hvað er velgengni fyrir þér? Velgengni fyrir mér er þegar maður er búin að vera leggja mikið á sig og æfa vel og þegar þeir hlutir byrja að sýna sig […]
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum

Miðflokkurinn hefur ákveðið að bjóða fram lista í Vestmannaeyjum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ákvörðunin var tekin í framhaldi af fjölsóttum stjórnmálafundi flokksins í Eyjum fyrr á árinu og samkvæmt tilkynningu einnig vegna ákalls frá bæjarbúum. Kynning á frambjóðendum mun hefjast á næstu dögum, en jafnframt er áhugasamt fólk hvatt til að hafa samband við Miðflokksdeild Vestmannaeyja. […]
Kyrrðarbæn í dag

Haustið 2022 var haldið námskeið um kyrrðarbæn í Eyjum og var góð þátttaka. Eftir það hittumst við vikulega í Landakirkju. En undanfarið höfum við ekki komið saman og nokkrir hafa saknað þessara stunda. En núna ætlum við að hittast á þriðjudögum kl. 17.00 í Landakirkju og við byrjum þriðjudaginn 3. febrúar. Við komum saman rétt […]