Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
Hraunb IMG 3125 2
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hraunbúðir. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Héraðsdómur Suðurlands hefur hafnað kröfu lögreglunnar á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur sem voru handteknir í gær í tengslum við andlát á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Frá þessu er greint á fréttavefnum mbl.is.

Þar er haft eftir Jóni Gunnari Þórhallssyni, yfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á Suðurlandi að til standi að kæra niðurstöðuna til Landsréttar. Samkvæmt heimildum mbl.is er um tvo starfsmenn að ræða og er annar þeirra hjúkrunarfræðingur á stofnuninni en rannsóknin beinist að því hvort lyfjagjöf hafi leitt til andlátsins.

 

Eyjar Ur Lofti Skjask Hbh 0325Tveir handteknir í tengslum við andlát

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.