Smíði nýs útisviðs á Vigtartorgi er hafin. Sviðið verður 82,8 fermetrar og er ætlað fyrir tónleika, hátíðarhöld og aðra menningarviðburði. Framkvæmdin er lokaskrefið í uppbyggingu torgsins, að því er fram kemur á vef Vestmannaeyjabæjar.
Útisviðið hefur frá upphafi verið hluti af heildarhönnun Vigtartorgs. Markmið bæjarins með uppbyggingunni er að skapa samkomusvæði sem tengir miðbæinn við hafnarsvæðið. Undanfarin ár hefur torgið verið endurnýjað, aðstaða til útivistar og samveru bætt og almenningssalerni byggð. Með sviðinu skapast aðstaða til fjölbreyttara viðburðahalds á torginu.
Þrjú tilboð bárust í smíði útisviðsins. Lægsta tilboðið kom frá SA Smíðum og hljóðaði upp á 52,9 milljónir króna, um 10,6 milljónum króna yfir kostnaðaráætlun. Bæjarráð samþykkti í kjölfarið átta milljóna króna viðauka við fjárhagsáætlun vegna sviðsins og vísaði honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

Fyrri frétt Eyjafrétta um málið:
Þrjú tilboð bárust í smíði nýs sviðs á Vigtartorgi þegar opnað var fyrir þau þann 18. júní síðastliðinn. Lægsta tilboðið hljóðaði upp á tæpar 52,9 milljónir króna og er rúmum 10,6 milljónum yfir kostnaðaráætlun verksins. Fram kemur í bókun framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja að kostnaðaráætlun hafi verið 42.237.000 krónur. Tilboðin voru eftirfarandi: SA Smíðar ehf. […]