Flaggað er í hálfa stöng við ráðhús Vestmannaeyja og Vinnslustöðina til minningar um skipverjana þrjá sem fórust þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk fyrir austan. Vestmannaeyjabær, Vinnslustöðin, Ísfélagið og starfsfólk Ribsafari hafa sent aðstandendum þeirra samúðarkveðjur.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri sendi kveðju fyrir hönd Vestmannaeyinga. „Á þessari sorgarstundu er hugur okkar hjá áhöfn Jökuls og öllum þeim sem eiga um sárt að binda,“ segir í kveðjunni.
Vinnslustöðin vottar fjölskyldum, vinum og samstarfsfólki skipverjanna samúð. Í kveðju Ísfélagsins til aðstandenda er einnig þakkað fyrir störf björgunarfólks við erfiðar aðstæður.
Starfsfólk Ribsafari sendir fjölskyldum og ástvinum þeirra sem fórust samúðarkveðjur og segist jafnframt hugsa til skipverjanna sem komust lífs af og fjölskyldna þeirra. Í kveðjunni er björgunarfólki þakkað fyrir störf þess í myrkri, miklum öldugangi og hvassviðri.