Utanvegahlaupið The Puffin Run fer fram í Vestmannaeyjum þann 8. maí 2027 kl. 12:15. Opnað verður fyrir skráningu í hlaupið í dag, fimmtudag, klukkan 10:00.
The Puffin Run hefur fest sig í sessi sem eitt fjölmennasta utanvegahlaup landsins. Hlaupið hefur verið haldið frá árinu 2018 og verður þetta tíunda skiptið sem hlaupið fer fram. Fallegt og einstakt umhverfi Vestmannaeyja, ásamt öflugum brautarvörðum, hefur skapað hlaupinu sérstöðu og gert það að vinsælum viðburði meðal hlaupara.
Áhugi á hlaupinu hefur verið mikill undanfarin ár. Í fyrra stefndi í metþátttöku þegar alls 1.600 hlauparar höfðu skráð sig til leiks. Samgöngutruflanir settu þó strik í reikninginn og að lokum tóku um 600 hlauparar þátt.
Í kvennaflokki hefur Andrea Kolbeinsdóttir sigrað síðustu fimm ár í röð og á jafnframt brautarmetið, 1:20:00. Eyjamaðurinn Hlynur Andrésson á brautarmetið í karlaflokki, en tími hans er 1:14:56. Nánari upplýsingar um hlaupið má sjá hér að neðan.
Vegalengd
Skráning og afhending gagna
Forskráning er á hér á netskráning.is og takmarkast fjöldi þátttakenda við 1.500 skráningar í heilt, 80 tvímenningslið og 20 boðhlaupssveitir.
Í boði verður einstaklingskeppni í karla- og kvennaflokki sem og boðhlaup 2 og 4 manna í karla-, kvenna-, og blönduðum flokki. Hlauparar geta þá hlaupið 2*10 km eða 4*5 km.
Boðhlaup
Einn aðili skráir liðið til keppni og greiðir þátttökugjald fyrir allt liðið í þeirri skráningu.
Stuttu fyrir hlaupið kemur tengill fyrir þann sem skráði liðið þar sem hann skráir inn einstaklinga sem eru í liðinu.
Skráningargjaldið er:
Afhending gagna
Gögn verða afhent í Sportvörum Dalvegi 32a í Kópavogi, föstudaginn 30. apríl
Veitt eru peningaverðlaun til fyrstu þriggja karla og kvenna.
Einnig eru verðlaun fyrir fyrsta sæti í tvímennings og fjögurra manna sveit karla, kvenna og blandaðri.
Rásmarkið og Stratið í hlaupinu
Rásmark og endastöð verður á Nausthamarsbryggju. Þeir sem eru að fara seinni parta hlaupsins fá akstur frá Nausthamarsbryggju að skiptistöð. Óskað er eftir að þeir sem eru búnir að hlaupa fyrri hluta, taki á móti liðsfélaganum við markið þar sem ljósmyndarar verða á staðnum.
Þátttakendur komast í sturtu í Sundlaug Vestmannaeyja eftir hlaup.
Allar nánari upplýsingar er hægt að finna inn á vef hlaupsins thepuffinrun.com.
Skráning fer fram hér.