Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Myndin er tekin í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/TMS

Dýpi við Landeyjahöfn er orðið verulega takmarkað eftir miklar brælur undanfarna daga. Herjólfur mun því sigla til og frá Þorlákshöfn þar til annað verður tilkynnt, samkvæmt nýrri tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Siglingum um Landeyjahöfn verður að haga eftir sjávarföllum og einungis verður hægt að sigla þangað við bestu aðstæður. Í tilkynningunni kemur fram að flóð séu á óhagstæðum tímum næstu vikuna.

Dýpkun hefst þegar aðstæður leyfa

Dýpkunarskipið Sebastiano Caboto mun hefja dýpkun um leið og aðstæður leyfa.

Á meðan verður siglt eftir eftirfarandi áætlun.

  • Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00.
  • Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45.

Farþegar eru minntir á að á þessum árstíma geti þurft að færa siglingar milli hafna og því sé ekki æskilegt að skilja ökutæki eftir í annarri hvorri höfninni. Þeir sem ætla að nýta gistirými ferjunnar þurfa að koma með eigin búnað.

Nýjasta dýptarmælingin.

Nýjustu fréttir

Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Einar Gunnarsson skólastjóri er Eyjamaður mánaðarins
Ný vísindagrein um Kveikjum neistann
Ný aðstaða eykur sveigjanleika hafnarinnar
Mikill áhugi á The Puffin Run – Um 1.300 keppendur þegar skráðir
Sala á jólasælgæti Kiwanis hefst um helgina
25 fjölmiðlar fá rekstrarstuðning
Fresta tendrun jólatrésins á Stakkagerðistúni vegna veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.